Skip to main content

Er þörf á breytingum á Alþingiskafla stjórnarskrárinnar?

 Er þörf á breytingum á Alþingiskafla stjórnarskrárinnar? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. janúar 2024 15:00 til 17:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Forsætisráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík býður til málþings undir yfirskriftinni „Er þörf á breytingum á Alþingiskafla stjórnarskrárinnar?“ Málþingið fer fram föstudaginn 5. janúar 2024 kl. 15-17 í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ og verður auk þess í beinu streymi.

Á málþinginu verður fjallað um greinargerð Þórðar Bogasonar hæstaréttarlögmanns um hvort þörf sé á breytingum á Alþingiskafla stjórnarskrárinnar. Málþingið er þriðja af þremur um efni greinargerða sérfræðinga sem forsætisráðherra fól að vinna um kafla stjórnarskrárinnar um Alþingi, dómstóla og mannréttindi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, flytja ávörp. Þórður Bogason fer yfir niðurstöður greinargerðar sinnar.

Pallborðsumræður, þátttakendur eru:

  • Björg Thorarensen hæstaréttardómari
  • Hafsteinn Dan Kristjánsson, lektor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík
  • Haukur Logi Karlsson, lektor við Lagadeild Háskólans á Bifröst
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður og formaður Viðreisnar
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Miðflokksins

Fundarstjóri er Trausti Fannar Valsson, dósent og deildarforseti Lagadeildar HÍ.

Stjórnarskrá Íslands verður 150 ára 5. janúar 2024. „Stjórnarskrá um hin sjerstaklegu málefni Íslands“ var staðfest af konungi 5. janúar árið 1874. Af því tilefni flytur forseti Alþingis ávarp.

Forsætisráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík býður til málþings undir yfirskriftinni „Er þörf á breytingum á Alþingiskafla stjórnarskrárinnar?“ Málþingið fer fram föstudaginn 5. janúar 2024 kl. 15-17 í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ.

 Er þörf á breytingum á Alþingiskafla stjórnarskrárinnar?