Þungir þankar Mikaels M. Karlssonar
Heimspekistofnun Háskóla Íslands gaf nýlega út bókina Þungir þankar með úrvali nokkurra helstu ritgerða Mikaels M. Karlssonar, prófessors emeritus, um heimspeki, bæði á íslensku og ensku. Elmar G. Unnsteinsson, vísindamaður við Heimspekistofnun er ritstjóri bókarinnar og tók efnið saman.
Mikael M. Karlsson hefur ætíð farið um víðan völl í verkum sínum eins og sjá má af fjölbreyttu efni þessarar bókar, enda er heimspekinni ekkert óviðkomandi. Í bókinni kafar Mikael djúpt ofan í áhugaverðar spurningar á ólíkum sviðum heimspekinnar: lögspeki, hugspeki, fagurfræði, athafnafræði, siðfræði og túlkun Aristótelesar. Rökfærslur hans og hugmyndir varpa ljósi á djúpstæð vandamál og vekja nýjar spurningar. Ritgerðirnar sýna svo ekki verður um villst að löngu liðnir hugsuðir - Aristóteles og Hume - jafnt sem samtímahöfundar á borð við Donald Davidson eða Fred Dretske, geta átt í gjöfulum samræðum við nútímann og komið okkur til að sjá sígild heimspekileg vandamál í nýju ljósi.
Mikael M. Karlsson (f. 1943) er prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi í heimspeki við Brandeis-háskóla í Bandaríkjunum árið 1973 og kenndi síðan heimspeki við Háskóla Íslands þar til hann lét af störfum árið 2013. Auk þess var hann deildarforseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Akureyri árin 2003 til 2007. Undanfarin ár hefur hann kennt við sagnfræði- og félagsvísindadeild Fróðskaparseturs Færeyja.