Málþing í tilefni af sjötugsafmæli Þórólfs Matthíassonar prófessors
![Málþing í tilefni af sjötugsafmæli Þórólfs Matthíassonar prófessors - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/_kri8214_4.jpg?itok=87a9KwzZ)
Hvenær
15. desember 2023 13:30 til 15:30
Hvar
Oddi
Stofa 101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Samstarfsmenn Þórólfs og vinir ræða nokkur málefni sem hann hefur komið að. Gunnar Hall talar um starfið í fjármálaráðuneytinu á 9. áratugnum. Gylfi Zoega ræðir starfið í hagfræðideild, Þorvaldur Gylfason talar um sjávarútvegsmál og Daði Már Kristófersson um landbúnað. María Theijl segir frá eftirliti með sértækri skuldaaðlögun eftir hrun, Rúnar Vilhjálmsson ræðir kjarabaráttu háskólakennara og Sigurjón Geirsson fjallar um ritdeilur um ársreikninga sjávarútvegsfyrirtækja sumarið 2022. Þórólfur segir nokkur orð í lokin.
Stefán Hrafn Jónsson forseti Félagsvísindasviðs stýrir málþinginu. Að lokum eru léttar veitingar á kaffistofu í Odda.
Þórólfur Geir Matthíasson, prófessor í hagfræði.
![Málþing í tilefni af sjötugsafmæli Þórólfs Matthíassonar prófessors](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/r97bb.jpg?itok=hYfWP6n4)