Skip to main content

Útgáfuhóf - bókin Sund eftir Katrínu Snorradóttur og Valdimar Tr. Hafstein

Útgáfuhóf - bókin Sund eftir Katrínu Snorradóttur og Valdimar Tr. Hafstein - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. nóvember 2023 15:30 til 17:00
Hvar 

Háskólatorg

Bóksala stúdenta

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Út er komin bókin Sund eftir þau Katrínu Snorradóttur og Valdimar Tr. Hafstein. 

Í tilefni af því verður haldið útgáfuhóf í Bóksölu stúdenta. 

Öll velkomin.

 

Sundlaugarnar eru helsti samkomustaður heillar þjóðar sem sækir þangað næði eða samveru, hreinsun og heilsubót sálar og líkama. Sundið er lífsnauðsyn fyrir eyjarskeggja, undursamlegur leikvöllur hinna ungu og nærandi þeim sem eldri eru. Í sundi birtist samfélagið sjálfu sér … á sundfötunum.

Sund segir ylvolga sögu af íslensku nútímasamfélagi í mótun, með léttri klórangan og hveralykt, gufuslæðu og skvampi. Sundið er skoðað frá ýmsum hliðum og öllum hornum landsins. Sundlaugagestir sjálfir fá orðið og lýsa upplifun sinni í bland við ótal ljósmyndir, gamlar og nýjar, sem sýna landsmenn léttklædda að læra, leika og njóta í sundi.

Bókin Sund eftir Katrínu Snorradóttur og Valdimar Tr. Hafstein.

Útgáfuhóf í tilefni af útgáfu bókarinnar Sund