Skip to main content

Málþing - Vettvangur samsköpunar

Málþing - Vettvangur samsköpunar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. nóvember 2023 14:00 til 16:00
Hvar 

Borgarbókasafnið Grófinni

Nánar 
Ókeypis aðgangur

Hvernig má virkja samfélagsrými svo fólk úr öllum áttum geti mæst?

Að lokinni hringferð um landið þar sem stoppað var á bókasöfnum, listasöfnum, menningarsetrum og aðsetrum listamanna komum við saman í Grófinni. Samstarfsaðilar verkefnisins Vettvangur samsköpunar deila sinni reynslu af því að beita skapandi aðferðafræði til að vinna gegn jaðarsetningu innflytjenda og efla borgaralega þátttöku þvert á samfélagið.

Samfélög eru í stöðugri þróun og í hverju og einu þeirra er þörf á stað þar sem fólk mætist til að takast á við breytta tíma og breytinga í samsetningu samfélagsins. Hvar eru þessir staðir í dag? Hvernig þróum við færni okkar til að tengjast og verða hluti af samfélagi?

14:00-15:00 - Samsköpun í almenningsrými

  • Aija Burdikova, Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyri
  • Elísa Elíasdóttir, Héraðsbókasafn Rangæinga, Hvolsvöllur
  • Vaida Bražiūnaitė, Hversdagssafnið, Ísafjörður
  • Lara Hoffmann og Anna Wojtyńska, verkefnastjórar frá Háskóla Íslands og rannsakendur verkefnisins Vettvangur samsköpunar, kynna fyrstu niðurstöður verkefnisins að lokinni hringferð um land allt.

15:00-16:00 - Að breyta rými í stað - Placemaking

Jesper Koefoed-Melson frá Vidalocal í Danmörku kynnir samsköpunarferla í mótun almenningsrýma sem staði þar sem fólk hittist. Jesper kynnir aðferðir sem hann beitir til að tengja einstaklinga og hópa saman og breyta rými í stað með sameiginlegri upplifun. Eitt dæmi um slíka samsköpun er Kulturdistriktet í Kaupmannahöfn.

Á málþinginu fáum við einstaka innsýn í þróun bókasafna og annarra menningarstofnana í dreifbýli og þéttbýli til að mæta breyttum tímum og hvernig slíkar stofnanir og almenningsrými geta átt hlut í að tengja saman hópa og opna fleirum möguleika á að taka þátt í samfélaginu.

Samstarfsaðilar málþingsins á Borgabókasafninu eru:

  • Amtsbókasafn Akureyri
  • Blábankinn á Þingeyri
  • Bókasafn Héraðsbúa á Egilsstöðum
  • Bókasafn Húsavíkur
  • Bókasafn Ísafjarnar
  • Héraðsbókasafn Rangæinga á Hvolsvelli
  • Hversdagssafn á Ísafirði
  • Westfjord Residency á Þingeyri
  • Sláturhúsið á Egilsstöðum

Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands og er styrkt af Bókasafnasjóði og Byggðarannsóknasjóði.

Facebook-síða málþingsins