Er hægt að leggja Þjóðminjasafnið niður? Leiðbeiningar til ráðvilltrar stjórnmálastéttar
Þjóðminjasafnið (fyrirlestrasalur)
Kristján Mímisson, sérfræðingur í miðlun menningarsögu á Þjóðminjasafni Íslands, flytur fyrirlesturinn „Er hægt að leggja Þjóðminjasafnið niður? Leiðbeiningar til ráðvilltrar stjórnmálastéttar“ í fyrirlestraröðinni Eru söfn einhvers virði? Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 10. nóvember kl. 12-13.
Um erindið
Söfnum af öllum tegundum og gerðum er reglulega lokað út um allan heim, ekki bara tímabundið heldur er starfsemi margra safna alfarið lögð niður. Í þessu felast margvíslegar áskoranir fyrir þá er reka söfnin, sem oftast eru opinberir aðilar. Því miður er lokunarferlið ekki alltaf vel ígrundað, líkt og sjá mátti á útmánuðum þegar Reykjavíkurborg og Kópavogskaupstaður ákváðu að loka skjalasöfnum sínum og færa reksturinn í hendur ríkisins.
Í þessu erindi verður stjórnmálasétt landsins leiðbeint um það hverig hún skuli bera sig að ef hugmyndin um að leggja niður Þjóðminjasafni Íslands skyldi vakna. Hvernig á hún að fara að og hvaða afleiðingar hefði lokunin í för með sér?
Um fyrirlestraröðina
Miðstöð einsögurannsókna við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og námskeiðið Einkaskjöl: Vitnisburður hina valdlausu? við námsbraut í sagnfræði efna til fyrirlestraraðarinnar. Fundarstjórar verða þau dr. Anna Heiða Baldursdóttir, dr. Sólveig Ólafsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu.
Dagskrá fyrirlestraraðarinnar:
- 25. ágúst. Stjórnmál og söfn – Pólitískir gjörningar á undanförnum mánuðum. Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands.
- 1. september. Einkaskjöl og opinber skjöl, skjalasöfn og stjórnskipan. Héraðsskjalasafn Kópavogs í ljósi sögunnar. Hrafn Sveinbjarnarson, sagnfræðingur – forststöðumaður héraðsskjalasafns Kópavogs.
- 8. september. Draumur sem brást – hvers vegna á þjóðin ekkert leiklistar- eða tónlistarsögusafn? Dr. Jón Viðar Jónsson listfræðingur.
- 15. september. Hvar býr þekkingin? Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands.
- 22. september. Nútíma skjalastjórn og langtímavarsla opinberra skjala. Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
- 29. september. Söfn og kennsla: Þurfamannaævir. Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands
- 6. október. Miðlun menningararfs. (Ó)Þarfar rannsóknir á söfnum. Dr. Anna Heiða Baldursdóttir, nýdoktor við Landsbúnaðarsafnið á Hvanneyri.
Hlé í tvær vikur
- 27. október. Óhjálplega safnið. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands
- 3. nóvember. Kjarnorkusprengjan, vöggustofurnar og skjalasafnið: Hugleiðingar um stofnanaminni og ábyrgð stjórnmálanna. Stefán Pálsson, sjálfstætt starfandi sagnfræðingur.
- 10. nóvember. Er hægt að leggja Þjóðminjasafnið niður? Dr. Kristján Mímisson, sérfræðingur í miðlun menningarsögu á Þjóðminjasafni Íslands.
- 17. nóvember. Er Hafnafjörður týndur? Gögn gamla Hafnafjarðar. Dr. Sólveig Ólafsdóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands
- 24. nóvember. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að halda upp á þetta? Bókasafn Íslenska esperantosambandsins og saga alþjóðahyggju á Íslandi. Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Háskóla Íslands.
- 1. desember. Samantek og umræða.
Kristján Mímisson, sérfræðingur í miðlun menningarsögu á Þjóðminjasafni Íslands.