Skip to main content

Útgáfuhóf í tilefni af nýrri bók eftir Gylfa Zoega

Útgáfuhóf í tilefni af nýrri bók eftir Gylfa Zoega - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. nóvember 2023 16:00 til 17:00
Hvar 

Háskólatorg

Bóksala Stúdenta

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Margir halda að hagfræði fjalli einungis um verðbólgu, atvinnuleysi og vexti. En hagfræði hjálpar okkur að skilja líf okkar og umhverfi. Hún er í raun allt í kringum okkur. Þannig lýsir hagfræðin ákvörðunum okkar, hvernig hinn skynsami maður ætti að taka ákvarðanir, en jafnframt hvernig ákvarðanataka okkar fellur oft ekki að þessari fullkomnu skynsemi einfaldrar hagfræði og hvaða hvatar kunni að stjórna slíkum ákvörðunum. Í Hagfræði daglegs lífs – í stuttu máli er sjónarhorni þessarar fræðigreinar beitt á ólík svið, allt frá nærtækustu viðfangsefnum til þeirra víðtækustu.

Þannig er þeim margháttuðu notum sem má hafa af hagfræði lýst, hvort heldur í einkalífi og makaleit, menntun og vinnuleit, stjórnmálum og siðferði eða þegar hinstu rök tilverunnar eru ígrunduð.

Útgáfuhóf í tilefni af nýrri bók eftir Gylfa Zoega í Bóksölu stúdenta föstudaginn 3. nóvember kl. 16:00

Útgáfuhóf í tilefni af nýrri bók eftir Gylfa Zoega