Vinnustofa kennara: Menningarmót - fjöltyngi og fjölbreytni sem fjársjóður
![Vinnustofa kennara: Menningarmót - fjöltyngi og fjölbreytni sem fjársjóður - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_kri_verold_byggingar_180813_002.jpg?itok=sfxhTEKj)
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 201 (Heimasvæði tungumála)
Kristín R. Vilhjálmsdóttir mun í vinnustofunni kynna hagnýtar leiðir í skólastarfi til að leyfa öllum tungumálum og reynsluheimum barna og ungs fólks að blómstra gegnum sköpun og samskipti.
Hún kynnir m.a verkefnið Menningarmót sem hún hefur þróað og unnið í fjölmörgum grunn- og framhaldsskólum á Íslandi og í Danmörku síðasta áratuginn þar sem börn verða meðvituð um eigin styrkleika og þann kraft sem býr í margbreytileikanum út frá vinnu með fjölbreytta menningu og tungumál.
Markmið Menningarmóta er meðal annars að varpa ljósi á þá styrkleika sem fylgir því að geta talað og skilið mörg tungumál og að nýta fjöltyngi nemenda sem leið til að stuðla að forvitni og áhuga á tungumálum almennt. Menningarmót hlaut verðlaunin The European Language Label árið 2017.
Kristín mun einnig miðla sinni eigin reynslu af að hafa nánast “fryst” móðurmálið sitt - íslenskuna - í 30 ár og “tungumálaskömmina” sem fylgdi því.
Kristín R. Vilhjalmsdóttir er sjálfstætt starfandi og rekur fyrirtækið “Kulturkompasset”. Sérhæfing hennar felst m.a í að aðstoða danskar og íslenskar mennta- og menningarstofnanir við að innleiða starfsemi og verkefni með áherslu á fjölbreyttum tungumálum, menningarfærni og -næmi. Hún er menntaður tungumálakennari og er með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun.
Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu og engrar skráningar er krafist.
Vinnustofur kennara eru samstarfsverkefni Vigdísarstofnunar og STÍL - Samtaka tungumálakennara á Íslandi.
Vinnustofa kennara: Menningarmót - fjöltyngi og fjölbreytni sem fjársjóður
![Vinnustofa kennara: Menningarmót - fjöltyngi og fjölbreytni sem fjársjóður](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/adk6z.jpg?itok=ccOTqfRG)