Málstofa Farsældarnets: Áskoranir rannsakenda sem vinna rannsóknir með börnum
![Málstofa Farsældarnets: Áskoranir rannsakenda sem vinna rannsóknir með börnum - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_1920_KRI_sofinn_151014_003.jpg?itok=JDEyldKG)
Háskólatorg
- HT 300
Erindi á vegum Félagsráðgjafardeildar.
Fyrirlesari: Hervör Alma Árnadóttir, dósent.
Áhersla á þátttöku barna í rannsóknum sem varða líf þeirra og aðstæður hefur aukist á síðust áratugum. Þó niðurstöður rannsókna hafi bent til þess að þátttaka barna í rannsóknum hafi almennt aukist, þá virðist sá hópur barna sem nýtur sérstaks stuðnings frá mennta- og velferðarkerfi oft vera skilinn útundan og síður vera boðinn þátttaka í rannsóknum. Ástæður þess virðast að einhverju leyti liggja í því flókna ferli sem rannsakendur þurfa að vinna sig í gegnum til þess að fá aðgengi að þessum hópi barna.
Í erindinu verður fjallað um áskoranir sem rannsakendur mæta þegar unnið er að því að fá börn sem njóta sérstaks stuðnings velferðar –og menntakerfa til þátttöku rannsóknum og bent á mögulegar leiðir til að sigrast á þeim áskorunum.