Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum
![Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_groska_200904_002.jpg?itok=5vV4xau-)
Lögberg
- stofa 103
Fyrirlestur á vegum Kvennasögusafns Íslands, Stjórnmálafræðideildar og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Aukin þátttaka kvenna í stjórnmálum hefur víða leitt til árása, ógnana og áreitni. Prófessor Krook greinir þetta fyrirbæri og færir fyrir því rök að ofbeldi gegn konum í stjórnmálum sé meira en kynjuð framlenging af ofbeldi í stjórnmálum. Miklu frekar sé það sérstakt fyrirbæri sem felur í sér árásir af ýmsum toga sem grafa undan konum sem gerendum í stjórnmálum. Með dæmum víða að sýnir hún fram á það hvernig þetta ofbeldi birtist í raun og hvernig hægt er að berjast gegn því.
Mona Lena Krook er prófessor í stjórnmálafræði við Rutgers-háskóla og fer fyrir doktorsnámi í konum og stjórnmálum við sömu stofnn. Rannsóknir hennar á sviði kynja- og stjórnmálafræði varða t.d. kynjakvóta og áhrif kvenna í opinberum embættum.
Viðburður fer fram á ensku.
Mona Lena Krook, prófessor í stjórnmálafræði við Rutgers-háskóla.
![Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/d44g6.jpg?itok=fnN0569O)