Afhending Vigdísarverðlaunanna 2023
![Afhending Vigdísarverðlaunanna 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/anne_carson.jpg?itok=6SE06Kjp)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Anne Carson, sérfræðingur í klassískum fræðum, skáld og þýðandi, er handhafi Vigdísarverðlaunanna 2023. Verðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs.
Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar.
Rektor Háskóla Íslands og fulltrúi menningar- og viðskiptaráðherra munu afhenda Carson verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 6. október næstkomandi og mun Carson flytja erindi af því tilefni.
Viðburðurinn er öllum opinn en hann verður einnig í beinu streymi.
Anne Carson, sérfræðingur í klassískum fræðum, skáld og þýðandi, er handhafi Vigdísarverðlaunanna 2023. Rektor Háskóla Íslands og fulltrúi mennta- og viðskiptaráðherra munu afhenda Carson verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 6. október næstkomandi og mun Carson flytja erindi af því tilefni.
![Afhending Vigdísarverðlaunanna 2023](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4ax92.jpg?itok=A31b6sQk)