Kvikmyndasýning Úkraínuverkefnis HÍ - Julia Blue í Veröld, 21. september
![Kvikmyndasýning Úkraínuverkefnis HÍ - Julia Blue í Veröld, 21. september - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_1920_KRI_sofinn_151014_003.jpg?itok=JDEyldKG)
Veröld - Hús Vigdísar
VHV-023 Auðarsalur
Kvikmyndin Julia Blue eftir Roxy Toporowych frá árinu 2018 verður sýnd á vegum Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands, fimmtudaginn 21. september kl. 18:00 í Auðarsal í Veröld. Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Julia, aktívisti í Úkraínu, fékk áhuga á að læra ljósmyndun þegar hún varð vitni að Maidan byltingunni í Kyiv árið 2014. Hún stefnir á framtíð sem ljósmyndari og bíður frétta frá virtum ljósmyndaskóla í Þýskalandi. Hún er sjálfboðaliði á hersjúkrahúsi fyrir slasaða hermenn sem koma beint frá vígstöðvunum. Julia kynnist hermanni sem kallar sig English. Þegar hún tekur English með sér heim í fjölskyldubrúðkaup koma falin leyndarmál í ljós. Julia Blue fjallar um kostnaðinn af ást og stríði, og sársaukafullar ákvarðanir.
Úkraínuverkefni Háskóla Íslands heyrir undir EDDU rannsóknasetur og hefur það að markmiði að auka þekkingu og skilning á Úkraínu í íslensku samfélagi, m.a. með því að skipuleggja viðburði fyrir almenning. Sérstök áhersla er á menningarlíf, sögu, fjölmiðla og stjórnmál. Umsjón með því hafa Jón Ólafsson prófessor og Helga Brekkan verkefnastjóri.
Kvikmyndina Julia Blue frá árinu 2018
![Kvikmyndasýning Úkraínuverkefnis HÍ - Julia Blue í Veröld, 21. september](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/w9x72.jpg?itok=9zXidL3z)