Briskrabbamein og eftirlit með einstaklingum í hárri áhættu
Nauthóll
Briskrabbamein eru erfiðari viðureignar en mörg önnur krabbamein og þrátt fyrir að vera um 2% af þeim krabbameinum sem greinast á hverju ári hér á landi eru þau fjórða algengasta orsök dauðsfalla af völdum krabbameina.
Um 40 manns greinast með briskrabbamein árlega á Íslandi og svipaður fjöldi deyr úr sjúkdómnum á hverju ári.
Afar brýnt er að finna leiðir til að auka lifun þeirra sem fá briskrabbamein, meðal annars með því að greina meinin snemma, þegar skurðaðgerð er líkleg til árangurs. Ein leiðin til þess er að bæta eftirlit með einstaklingum sem vitað er að eru í hárri áhættu á að fá briskrabbamein.
Þetta eru til dæmis einstaklingar sem hafa arfgengar breytingar í genum, s.s. BRCA2, og fjölskyldusögu um briskrabbamein, sem og fjölskyldur þar sem 3 eða fleiri einstaklingar hafa greinst með briskrabbamein. Á Landspítala er hafinn undirbúningur að slíku eftirliti.
Á málþinginu sem Landspítalinn, Háskóli Íslands og Krabbameinsfélagið standa að, fjalla íslenskir og erlendir fyrirlesarar um eftirlitið, gagnsemi þess, stöðuna hér á landi og fleira.
Málþingið er opið öllum, almenningi jafnt sem fagfólki og er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Málþingið fer fram bæði á íslensku og ensku. Fundarstjóri: Hlíf Steingrímsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins.
Skráning er nauðsynleg: Skrá hér.
Dagskrá:
14:00-14:05 Opnunarávarp
14:05- 14:25 Faraldsfræði og meðferð briskrabbameina. Sigurdís Haraldsdóttir MD, PhD, Yfirlæknir krabbameinslækningar, Landspítali – Háskólasjúkrahús, Dósent við Háskóla Íslands
14:25-14:45 Krabbameinsheilkenni á Íslandi – erfðaráðgjöf.
Vigdís Fjóla Stefánsdóttir, Ph.D., Erfðaráðgjafi Landspítali– Háskólasjúkrahús
14:45-15:05 Stökkbreytigreiningar og notkunarmöguleikar þrívíðra frumulíkana í briskrabbameinum.
Bylgja Hilmarsdóttir, Ph.D, Sameindalíffræðingur við meinafræðideild Landspítala
15:05-15:25 Kaffihlé
15:25-15:55 Genetic Counseling in Individuals at High-Risk for Pancreatic Cancer. Jessica Everett, MS, CGC
Genetics Counselor, Perlmutter Cancer Center, NY
15:55-16:25 The Pancreatic Cancer Early Detection (PRECEDE) Consortium; Clinical Management of Familial
Pancreatic Cancer Patients and their family members. Diane Simeone, M.D., Perlmutter
Professor of Surgery and Pathology, NYU Langone, Director of the Pancreatic Cancer Center
16:25-17:00 Umræður
Um 40 manns greinast með briskrabbamein árlega á Íslandi og svipaður fjöldi deyr úr sjúkdómnum á hverju ári.