Kossinn sem hefur valdið titringi í spænsku þjóðfélagi
![Kossinn sem hefur valdið titringi í spænsku þjóðfélagi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/spain_v_england_final_-_fifa_women_s_world_cup_australia_new_zealand_2023.jpeg?itok=d8Jhyvbz)
Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði tungumálanna, 2. hæð
Elvira Méndez Pinedo, prófessor í lögum við Háskóla Íslands, flytur erindi og tekur síðan þátt í pallborðsumræðum með Juan Pablo Mora, málvísindamanni frá Háskólanum í Sevilla, og Elíasi K. Portela ljóðskáldi. Rætt verður um umdeildan koss forseta Spænska knattspyrnusambandsins á Heimsmeistaramóti kvenna í Ástralíu í ágúst í málvísindalegu og lagalegu ljósi.
Viðburðurinn fer fram á vegum námsgreinar í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands á Heimasvæði tungumálanna í Veröld - húsi Vigdísar, föstudaginn 8. september og hefst kl. 14:00. Erindið og umræðan fara fram á ensku. Verið öll velkomin.
Mælt er með lestri þessara greina fyrir fundinn:
- https://www.nytimes.com/2023/08/29/world/europe/spain-world-cup-kiss-rubiales-what-happened.html
- https://www.newyorker.com/sports/sporting-scene/the-kissing-scandal-after-spains-womens-world-cup-win
- https://www.economist.com/europe/2023/08/29/a-sexism-scandal-in-spanish-football-hides-the-countrys-progress
Eða að fylgst sé með umfjöllun fjölmiðla um málið:
Landslið Spánar varð heimsmeistari kvenna í knattspyrnu 2023.
![Kossinn sem hefur valdið titringi í spænsku þjóðfélagi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/3z584.jpg?itok=Cja8MivM)