Kalarippayat – fornindversk bardaga- og heilunarlist
![Kalarippayat – fornindversk bardaga- og heilunarlist - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/4_september_kalari.jpg?itok=G01tBxCz)
Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði 2. hæð
Viðburðir á vegum Indverskra fræða í Mála og menningardeild HÍ.
4. september kl. 16:30 – 17:30 í Veröld - húsi Vigdísar (Heimasvæði á 2. hæð).
Sýnikennsla á hinni fornindversku bardaga- og heilunarlist Kalarippayat (Kalari), frá héraðinu Kerala. Þessi forna kunnátta gekk í munnmælum kynslóðum saman og þróaðist ásamt Jóga og Ayurveda og deilir þar af leiðandi eiginleikum beggja.
Leiðbeinandinn – Alana Gregory:
Alana bjó árum saman á Indlandi og lærði þar Kalarippayat. Bakgrunnur hennar er í umhverfisvísindum, Hatha Jóga, bardagaíþróttum, núvitund og heimspeki þeirri sem leggur grunn að þessum siðum.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Sýnikennsla á hinni fornindversku bardaga- og heilunarlist Kalarippayat (Kalari) verður haldin í Veröld - húsi Vigdísar (heimasvæði á 2. hæð), 4. september kl. 16:30 – 17:30.
![Kalarippayat – fornindversk bardaga- og heilunarlist](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/2qv3r.jpg?itok=8ImSCT2c)