Opið hús í Veröld – húsi Vigdísar
![Opið hús í Veröld – húsi Vigdísar - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_verold_byggingar_180813_002.jpg?itok=odYGYiOT)
Veröld - Hús Vigdísar
Efnt verður til opins húss fyrir allan almenning í Veröld – húsi Vigdísar, 15.–18. ágúst í tengslum við EUROCALL-ráðstefnuna sem fer fram þessa sömu daga.
Gestum verður boðið að skoða margmiðlunarsýninguna Mál í mótun og fræðast um hinar fjölmörgu hliðar tungumála heimsins. Einnig er í boði að prófa vefnámskeiðin Icelandic Online og Icelandic Online – börn. Auk þess er veggspjaldakynning ráðstefnunnar opin þeim sem hafa áhuga á að kynna sér nýjustu rannsóknir á sviði annarsmálsfræða.
Dagskrá opna hússins:
- Leiðsögn (í um 30 mín.) um margmiðlunarsýninguna Mál í mótun: Sýningarsalur á 1. hæð. Klukkan 13 (leiðsögn á íslensku) og klukkan 14.30 (leiðsögn á ensku).
- Icelandic Online og Icelandic Online – börn: Tungumálamiðstöð, stofur 230 og 231 á 2. hæð. Klukkan 9–17.
- Veggspjaldakynning í tengslum við EUROCALL-ráðstefnuna: Heimasvæði tungumála á 2. hæð. Klukkan 9–17.
Ráðstefnan fjallar um annarsmálsfræði og tæknistutt málanám og kennslu. Um er að ræða ráðstefnu á vegum samtakanna EUROCALL (European Association of Computer Assisted Language Learning) sem er haldin í evrópskum háskólum ár hvert.
Þemað að þessu sinni er tæknistutt nám og kennsla fjölbreytilegra tungumála en ráðstefnan er haldin í samstarfi Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (sjá nánar á heimasíðu ráðstefnunnar).
Veröld – húsi Vigdísar.
![Opið hús í Veröld – húsi Vigdísar](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/9jbkb.jpg?itok=J6F8IbF5)