Skip to main content

Einkaskjalasöfn og merking þeirra

Einkaskjalasöfn og merking þeirra - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. maí 2023 12:00 til 13:00
Hvar 

Þjóðminjasafn Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands, flytur opinn fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands. Fyrirlesturinn er öllum opinn auk þess sem hægt verður að fylgjast með honum í streymi.

Í erindinu mun Sigurður Gylfi fara yfir hugmyndir fólks um hluti sem það safnar og spyr: Hverju söfnum við að okkur? Hver er merking hlutanna fyrir einstaklingana? Til að svara spurningunum leitar Sigurður Gylfi meðal annars í efni sem tilheyrði afa hans, Helga Magnússyni járnsmiði og kaupmanni í Reykjavík. Helgi fæddist á 19. öld í íslenska bændasamfélaginu en gerðist síðar góðborgari í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldar. Hann skildi eftir sig safn mynda – nokkurs konar arkíf – sem Sigurður Gylfi rýnir í til að sýna fram á hversu mikilvægt er að hægja á rannsóknarferlinu til að öðlast dýpri skilning á hversdagslegri upplifun fólks á efnisveruleikanum.

Sigurður Gylfi er verkefnisstjóri öndvegisverkefnisins Heimsins hnoss, en samnefnd sýning stendur nú yfir í Þjóðminjasafni Íslands og er ætlað að miðla afrakstri rannsókna verkefnisins, sem hópur fræðimanna tók þátt í. Með erindi sínu bindur Sigurður Gylfi endahnútinn á fyrirlestraröð þá sem haldin hefur verið í tengslum við sýninguna. 

Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í menningarsögu við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands.

Einkaskjalasöfn og merking þeirra