Meistaradagur iðnaðarlíftækni
![Meistaradagur iðnaðarlíftækni - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_haskolinn_200220_002.jpg?itok=-ZEPUxN1)
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 023
Á meistaradegi iðnaðarlíftækni kynna nemar sem brautskrást 24. júní næstkomandi lokaverkefni sín.
Meistaranámi í iðnaðarlíftækni var komið á fót af samstarfsnefnd Háskóla Íslands og Alvotech. Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af Heilbrigðisvísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Nemendur brautskrást frá þeirri deild sem lokaverkefni þeirra er unnið við.
Dagskrá
Kl. 14:10 Hjördís Ólafsdóttir
Bestun á nýtingu framleiðslusvæðis í hliðstæðulyfjaframleiðslu (Optimization of Drug Substance Manufacturing facility occupancy for a Biosimilar Product)
14:30 Júlía Karitas Helgadóttir
Lífvirknimælingar á íslenskum brúnþörungum til notkunar í snyrtivöruiðnaði (Bioactivity screening of Icelandic brown seaweeds for application in cosmetics)
14:50 Leticia Randazzo
Þróun kerfis til framleiðslu ammóníum nítrats ( Development of a nitrification system for ammonium nitrate production)
15:10 Sigrún Rósa Hrólfsdóttir
Notkun rafrýmdarnema sem fingrafar á frumuþéttleika við framleiðslu einstofna mótefna ( Development of mAb production batch fingerprint based on in-line capacitance measurements)
15:30 Veitingar