Skattar og myndun ríkisvalds á Íslandi á 12. og 13. öld
![Skattar og myndun ríkisvalds á Íslandi á 12. og 13. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/sj.jpg?itok=2gRIqv5_)
Árnagarður
Stofa 304
Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur í Málstofu í félags- og hagsögu sem hann nefnir „Skattar og myndun ríkisvalds á Íslandi á 12. og 13. öld“.
Málstofan er í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 4. apríl kl. 16:00–17:00.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um skattheimtu á Íslandi fyrir daga ríkisvalds og fyrstu áratugina eftir innleiðslu þess. Meðal þess sem verður til umfjöllunar eru þingfararkaup, tíund, ostatollur og sauðatollur. Þetta verður rætt í samhengi við þróun valds á Íslandi og þá sérstaklega innleiðingu svæðisbundins valds og ríkjamyndun í kringum 1200. Einnig verður vikið að þróun skattheimtu í Noregi, innleiðslu konungsskatts á Íslandi og ráðstöfun hans fyrstu áratugi valdstjórnar á Íslandi.
Sverrir Jakobsson.
![Skattar og myndun ríkisvalds á Íslandi á 12. og 13. öld](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/3wzvg.jpg?itok=WriYbVBp)