Grunnnám - hvað svo?
![Grunnnám - hvað svo? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_haskoladagurinn_2023_230304_027_0.jpg?itok=hO9YV6Pz)
Háskólatorg
Hvað er í boði í Háskóla Íslands að loknu grunnnámi?
- Getur nemandi með BA-gráðu í mannfræði farið í talmeinafræði?
- Getur nemandi með BS-gráðu í hjúkrunarfræði farið í framhaldsnám í guðfræði?
- Getur nemandi með BS-gráðu í tölvunarfræði farið í framhaldsnám í leikskólakennarafræði?
- Hverjar eru forkröfurnar fyrir hverja og eina námsleið í framhaldsnámi við Háskóla Íslands?
Sérfræðingar deilda og fræðasviða Háskóla Íslands veita svör við þessum spurningum og mörgum fleiri á Háskólatorgi þriðjudaginn 21. mars milli kl. 11.30 og 13.30.
Enn fremur verða náms- og starfsráðgjafar á staðnum og veita ráðgjöf. Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim og sérfræðingar frá Alþjóðasviði kynna fjölbreytt tækifæri til skiptináms og starfsþjálfunar.
Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.
Komdu og kynntu þér ótal möguleika á framhaldsnámi.
Þá er boðið upp á kynningafundi eða innlit í tíma á völdum framhaldsnámsleiðum dagana 20.- 24. mars.
Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands er til 15. apríl.
Grunnnám hvað svo? Viðburður ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.
![Grunnnám - hvað svo?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/j66r4.jpg?itok=9NIkFcud)