Mazen Maarouf í Veröld - húsi Vigdísar

Hvenær
7. maí 2019 16:00 til 18:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur (023)
Nánar
Aðgangur ókeypis
Rithöfundurinn Mazen Maarouf var á dögunum tilnefndur til Man Booker International verðlaunanna fyrir bók sína Brandarar handa byssumönnum, sem út kom á arabísku árið 2016, en fyrir stuttu í enskri og íslenskri þýðingu.
Mazen Maarouf segir frá bókinni og verkum sínum á málfundi í Veröld - húsi Vigdísar þann 7. maí. Þar munu einnig taka til máls rithöfundurinn og þýðandinn Sjón og Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Háskóla Íslands, sem báðir hafa þýtt verk Mazen Maarouf. Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræði við Háskóla Íslands, verður fundarstjóri.
Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundinum loknum.
Mazen Maarouf í Veröld - húsi Vigdísar
