Fundaröð um tjáningarfrelsi – 3.Tjáningarfrelsi, þagnarskylda og uppljóstraravernd.
Lögberg
101
Tjáningarfrelsi, þagnarskylda og uppljóstraravernd er þriðji og jafnframt síðasti fundurinn í fundaröðinni Hvernig eflum við best tjáningarfrelsi?
Í tilefni af starfi nefndar forsætisáðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla og upplýsingafrelsis, sem nýlega skilaði af sér fimm lagafrumvörpum á þessu sviði og hefur frekari frumvörp í vinnslu, boða Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Orator, félag laganema, og ELSA á Íslandi til fundaraðar um efni frumvarpanna og það hvernig tjáningarfrelsi verði best eflt á Íslandi. Fundirnir verða í hádeginu þrjá miðvikudaga í röð, frá 7.– 21. nóvember.
Tjáningarfrelsi og þagnarskylda opinberra starfsmanna. Fyrirlesari: Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins og rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands.
Vernd uppljóstrara. Fyrirlesari: Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í Dómsmálaráðuneytinu.
Stjórnandi: Birgitta Jónsdóttir, stjórnarformaður IMMI.
Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í Dómsmálaráðuneytinu. Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins og rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands.