Skip to main content

Fundaröð um tjáningarfrelsi – 1. Ærumeiðingar og hatursorðræða.

Fundaröð um tjáningarfrelsi – 1. Ærumeiðingar og hatursorðræða. - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. nóvember 2018 12:00 til 13:15
Hvar 

Lögberg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ærumeiðingar og hatursorðræða er fyrsti fundurinn af þremur í fundaröðinni Hvernig eflum við best tjáningarfrelsi?

Í tilefni af starfi nefndar forsætisáðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla og upplýsingafrelsis, sem nýlega skilaði af sér fimm lagafrumvörpum á þessu sviði og hefur frekari frumvörp í vinnslu, boða Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Orator, félag laganema, og ELSA á Íslandi til fundaraðar um efni frumvarpanna og það hvernig tjáningarfrelsi verði best eflt á Íslandi. Fundirnir verða í hádeginu þrjá miðvikudaga í röð, frá 7.– 21. nóvember.

Ærumeiðingar – Frá refsingum til einkaréttarlegra úrræða. Fyrirlesari: Eiríkur Jónsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands.

Hatursorðræða – Dómaframkvæmd á Íslandi. Fyrirlesari: Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara og aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Hatursorðræða – Refsigleði umfram nauðsyn í lýðræðislegu samfélagi? Fyrirlesari: Davíð Þór Björgvinsson, landsréttardómari og rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands. 

Stjórnandi: Ester Petra Gunnarsdóttir, funda- og ráðstefnustjóri ELSA Iceland.

Hulda María Stefánsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara og aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Eiríkur Jónsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háksóla Íslands. Davíð Þór Björgvinsson, landsréttardómari og rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands. 

Fundaröð um tjáningarfrelsi – 1. Ærumeiðingar og hatursorðræða.