Skip to main content

Hluti af meistaranámi erlendis

Hluti af meistaranámi erlendis - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands er með samstarfssamninga við mikinn fjölda erlendra háskóla, þar sem þeir sem eru innritaðir í HÍ geta tekið hluta af námi sínu. Nemendur í alþjóðasamskiptum hafa m.a. farið til Ástralíu, Bandaríkjanna, Norðurlandanna og Belgíu. Háskóli Íslands er með ERASMUS samstarfssamninga við rúmlega 290 evrópska háskóla og þar að auki í NORDPLUS samstarfi við flesta háskóla á Norðurlöndum.

Allar nánari upplýsingar um skiptinám er að finna á upplýsingasíðu um skiptinám og á vef Alþjóðasviðs.