Deildin á í margskonar samstarfi við ýmsa aðila, bæði innanlands og utan. Tengsl deildarinnar við atvinnulífið eru góð og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir vinna með deildinni. Samstarf Háskólans annars vegar og fyrirtækja og opinberra aðila hins vegar skilar starfsmönnum og nemendum skólans miklu. Öflug samvinna er atvinnulífinu ekki síður mikilvæg en skólanum þar sem Háskólinn hefur verið driffjöður íslensks atvinnulífs og gegnir enn lykilhlutverki í því að gera Ísland samkeppnishæft á alþjóðavettvangi.
Öflugt alþjóðlegt samstarf
Háskóli Íslands starfar í alþjóðlegu umhverfi og á deildin samstarf við fjölmarga erlenda háskóla og rannsóknastofnanir um rannsóknir, nemendaskipti, starfsmannaskipti og fleira.
Kennarar sem og nemendur deildarinnar eiga í öflugu alþjóðlegu samstarfi. Kennarar skólans stunda rannsóknir við erlenda skóla, eru í alþjóðlegum rannsóknarteymum og nýta gjarnan rannsóknarleyfi sín við erlenda skóla. Nemendur eiga kost á því að stunda hluta af námi sínu við erlenda skóla í samráði við deild. Jafnframt koma erlendir kennarar til starfa við skólann yfir styttri og lengri tímabil.