Fullt út úr dyrum á opinni vörn
Fullt var út úr dyrum þegar Sigurlaug Soffía Friðþjófsdóttir stud. jur. varði meistararitgerð sína í lögfræði. Ritgerðin heitir „Túlkun á jákvæðum skyldum ríkisins á sviði mannréttinda í íslenskri réttarframkvæmd – með hliðsjón af réttarvernd fatlaðs fólks.“
Í fyrirlestrinum fjallaði Sigurlaug um fræði og kenningar sem lúta að túlkun laga, hlutverki dómstóla og jákvæðum skyldum ríkja.
Réttarvernd fatlaðs fólks í íslensku réttarkerfi var skoðuð og söguleg þróun laga og dómaframkvæmdar á því sviði greind.
Þá gerði hún grein fyrir því hvernig túlkun á jákvæðum skyldum ríkisins gagnvart fötluðu fólki hefur þróast í meðförum dómstóla hér á landi og ályktaði um mögulega áhrifaþætti sem liggja til grundvallar þróuninni.
Niðurstöður athugunar á dómaframkvæmd eru að á tilteknu tímabili hafi orðið stefnubreyting í aðferðum dómstóla við túlkun á jákvæðum skyldum ríkisins gagnvart fötluðu fólki.
Leiðbeinandi Sigurlaugar við ritgerðarskrifin var Brynhildur G. Flóvenz, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, en hún var jafnframt fundarstjóri. Prófdómari var Ragnar Aðalsteinsson hrl.