Skip to main content

Sláturgerð og prjónaskapur eftir hrun

Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild 

Hin hagsýna húsmóðir og afturhvarf til gamla tímans eftir hrun varð kveikjan að rannsókn sem Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði, vinnur að. Þóra skoðar verkaskiptingu kynjanna í góðærinu, í kreppu og í endurreisn. „Eftir hrunið virðist þjóðin hafa hellt sér í sláturgerð og prjónaskap og það vakti þá spurningu hjá mér hversu mikill tími hefði bæst við í heimilishaldið,“ segir Þóra Kristín.

Þóra Kristín Þórsdóttir

„Eftir hrunið virðist þjóðin hafa hellt sér í sláturgerð og prjónaskap og það vakti þá spurningu hjá mér hversu mikill tími hefði bæst við í heimilishaldið,“

Þóra Kristín Þórsdóttir

Rannsóknin, sem styrkt er af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands, er byggð á gögnum sem safnað er þrisvar með nokkurra ára millibili. Kannað er hvort breytingar á efnahagsástandi skili sér í verkaskiptingu á íslenskum heimilum. „Rannsóknin er tvíþætt, annars vegar ræðir hér um könnun á verkaskiptingu hjóna innan og utan heimilis og hins vegar athugun á því hvort breytingar á efnahagsástandinu hafi haft áhrif á verkaskiptinguna,“ útskýrir Þóra Kristín.

Niðurstöður rannsóknarinnar byggjast á gögnum frá 2005 og 2010, sem leiddu í ljós að fólk í hjúskap varði meiri tíma í heimilisstörf í kreppunni árið 2010 en það gerði í góðærinu, fimm árum fyrr. Þriðja könnunin stendur nú yfir og kemur þá væntanlega í ljós hvort sama þróun hefur haldið áfram í endurreisninni. Sýni gögnin áfram svipaða tilhneigingu styrkir það mjög alhæfingargildi og réttmæti niðurstaðna.

„Fyrir fræðin í heild er mikilvægt að skoða tengsl efnahagsviptinga og verkaskiptingar á íslenskum heimilum. Vinnutími Íslendinga í launuðu starfi er mjög langur en þrátt fyrir það verja Íslendingar svipuðum tíma og aðrar þjóðir í heimilisstörf. Heildarvinnuálag hér á landi er því mikið. Álag af barnauppeldi og heimilisstörfum er meira á konum en körlum. Aðstæður kynjanna til að sækjast eftir yfirvinnu, eða bara til að eiga sér áhugamál utan heimilis og vinnu, eru því ekki jafnar þótt við gerum alltof oft ráð fyrir að svo sé,“ segir Þóra Kristín að lokum.

Leiðbeinandi: Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.