Skip to main content

Löggan í háskólann

Guðrún Tinna Ólafsdóttir, MS frá Viðskiptafræðideild

„Ég leitaðist við að finna svör við því hvort grundvöllur væri fyrir lögreglumenntun á háskólastigi með því að bera námið annars vegar saman við nám lögreglumanna annars staðar á Norðurlöndum og hins vegar við nám annarra starfsstétta hér á landi sem gengið hafa í gegnum sambærilegar breytingar á námsfyrirkomulagi. Þar að auki gerði ég könnun á viðhorfi lögreglumanna til viðfangsefnisins,“ segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, MS í mannauðsstjórnun, um meistaraverkefni sitt.

Hún hafði unnið hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu í nokkurn tíma samhliða námi og ákvað því að taka fyrir viðfangsefni sem sneri að málefnum lögreglumanna.

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

„Ég leitaðist við að finna svör við því hvort grundvöllur væri fyrir lögreglumenntun á háskólastigi með því að bera námið annars vegar saman við nám lögreglumanna annars staðar á Norðurlöndum og hins vegar við nám annarra starfsstétta hér á landi sem gengið hafa í gegnum sambærilegar breytingar á námsfyrirkomulagi.“

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Hugmyndin kviknaði eftir að hún varð vör við að lögreglumenn höfðu mikinn áhuga á að efla menntun sína en sú staðreynd að lögreglunám er á háskólastigi í nágrannalöndunum hafði einnig sitt að segja. „Bakgrunnur minn í kennslufræðum á líka stóran þátt í vali mínu á rannsóknarefni. Lögreglustarfið er mjög krefjandi og fjölbreytt og verkefnin bæði flókin og breytileg. Því taldi ég áhugavert að skoða menntun lögreglumanna frekar,“ segir Tinna.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru lögreglumenn almennt hlynntir því að færa menntunina upp á háskólastig. Grundvöllur er fyrir því að efla töluvert menntun lögreglumanna, bæði með lengingu náms og eflingu á faglegri þekkingu. „Þegar litið er til hinna norrænu ríkjanna og viðmiðunarstétta hér á landi eru fordæmi fyrir því að flytja menntun á háskólastig. Til þess að vera samanburðarhæf við nágrannalönd okkar er mikilvægt að við fylgjum þeim hvað varðar þróun menntunar,“ segir Tinna.

Tinna segir aukna menntun lögreglumanna skila sér til samfélagsins, bæði með faglegri vinnubrögðum, aukinni sérþekkingu og að lokum öflugri löggæslu.

Leiðbeinandi: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Viðskiptafræðideild.