Skip to main content

Atvinnulausir karlar og heimilisstörfin

Ingólfur V. Gíslason, dósent við Félags- og mannvísindadeild

„Atvinnuleysi virðist hafa verri áhrif á sjálfsálit karla en kvenna, líklega vegna sterkrar tengingar karla við vinnumarkaðinn,“ segir Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði. Ingólfur vinnur að rannsókn við Félags- og mannvísindadeild á áhrifum atvinnuleysis á íslenska karlmenn. Stefnt er að því að ræða við pör þar sem karlinn hefur verið atvinnulaus í að minnsta kosti þrjá mánuði en konan er í fullri vinnu. Tilgangurinn er fyrst og fremst að reyna að komast að því hvaða afleiðingar þessi staða hefur fyrir samskipti parsins, sjálfsmat hvors um sig og skiptingu heimilisstarfa.

Ingólfur V. Gíslason

„Atvinnuleysi virðist hafa verri áhrif á sjálfsálit karla en kvenna, líklega vegna sterkrar tengingar karla við vinnumarkaðinn,“

Ingólfur V. Gíslason

„Evrópskar rannsóknir sýna að karlmenn draga úr þátttöku sinni í heimilisstörfum verði þeir atvinnulausir til lengri tíma,“ segir Ingólfur. „Nýlegar rannsóknir frá Svíþjóð benda hins vegar til þess gagnstæða, þ.e. að þeir auki þátttöku sína í heimilisstörfunum eða taki þau jafnvel alveg að sér. Mig langar til að kanna hvort það sama eigi við um íslenska karlmenn.“ Á Íslandi er nú óvanalega mikið atvinnuleysi og meira meðal karla en kvenna. Ingólfur telur því mikilvægt að kanna áhrif atvinnuleysis á íslenska karlmenn.

„Kynjasamskipti, karlar og karlmennska eru mér hugleikin,“ segir Ingólfur. Hann segir sjálfsmynd karla gjarnan bundna við atvinnu og félagsleg tengsl þeirra oft vera vinnutengd. Þegar þeir svo missa vinnuna þá grefur það bæði undan sjálfsmyndinni og þeir eiga á hættu að einangrast. Félagslegt net kvenna er aftur á móti oft meira utan vinnustaðar en karlanna. „Ég tel þó líklegt að íslenskir karlmenn séu frábrugðnir karlmönnum frá Mið-Evrópu hvað varðar þátttöku í heimilisstörfum. Samfélagslegt mynstur okkar er þannig.“