Skip to main content

Verkefni um ferðalög á Kili verðlaunað

Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir, nemandi við Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir, nemandi við Verkfræði- og náttúruvísindasvið háskólans, vann sérstök verðlaun Rannsóknamiðstöðvar ferðamála fyrir lokaverkefni sitt í ferðamálafræði. Verkefnið kallar hún Kjölur: Fjölbreytt landslag, ferðamennska og upplifun.
 

Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir

Jóna komst að því í verkefni sínu að ferðafólk á Kili sækist í kyrrð og frið öræfanna til að stunda náttúrutengda afþreyingu og að fjölbreytileiki náttúruupplifunar sé því ofarlega í huga.
 

Jóna Sigurbjörg Eðvaldsdóttir

Jóna komst að því í verkefni sínu að ferðafólk á Kili sækist í kyrrð og frið öræfanna til að stunda náttúrutengda afþreyingu og að fjölbreytileiki náttúruupplifunar sé því ofarlega í huga.

„Í viðtölunum kom mjög skýrt fram að ferðamenn á þessu svæði sækja fyrst og fremst í þann einfaldleika sem hálendið býr yfir,“ segir Jóna. „Hvers konar uppbygging á svæðinu, s.s. uppbyggðir vegir, hótel, jarðvarmavirkjanir og annað slíkt, myndi skerða ímynd svæðisins og jafnframt skerða þá upplifun sem þeir leita eftir á þessu svæði.“
 
Mikil umræða er nú um stýringu og skipulag víðernissvæða og taldi dómnefndin verkefni Jónu mikilvægt innlegg í þá umræðu. Verkefni Jónu fólst í viðtölum við ferðamenn á Kili og greindi hún eðli ferðamennskunnar á svæðinu og upplifun ferðafólksins. Jóna bendir á í verkefni sínu að sjónarhorn eða afstaða ferðamannsins hljóti að vera lykill að þróun ferðaþjónustu til fjalla sem og annars staðar. Þegar horft er til auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu virðast ferðamenn sammála um að aðgreiningarmátturinn liggi í náttúru og víðernum landsins.

„Rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem hefur að meginmarkmiði að afla þekkingar sem nýtist við gerð landnýtingaráætlunar fyrir ferðamennsku á hálendi Íslands. Með slíkri áætlun skapast tækifæri til að þróa mismunandi svæði hálendisins í takti við óskir ferðamanna og þol hvers svæðis fyrir sig,“ segir Jóna.

Verðlaun Rannsóknamiðstöðvarinnar koma árvisst í hlut nemanda við háskóla hér á landi sem vinnur framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál. Í umsögn dómnefndar um verkefni Jónu er það sagt vandað og samviskusamlega unnið, með metnað og fagmennsku að leiðarljósi.

Leiðbeinandi: Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild.