Skip to main content

Samrými reiðhjóla og bíla

Karl Benediktsson, prófessor í landfræði

„Reykjavík hefur verið skipulögð út frá forsendum einkabílsins. Núna eru áherslur hins vegar nokkuð að breytast hjá borginni. Verið er að skoða alls konar lausnir varðandi samspil reiðhjóla og bíla en enginn veit hvað virkar best. Eru það sérstakir hjólastígar, hjólareinar á götum eða einfaldlega hjólavísar sem gera götuna að sameiginlegu rými? Það er í raun og veru þetta sem við ætlum að komast að,“ segir Karl Benediktsson, prófessor í landfræði, um verkefni sem hann vinnur að ásamt meistaranemanum Davíð Arnari Stefánssyni.
 

Karl Benediktsson

„Í framtíðinni þarf að skipuleggja ný hverfi betur hvað varðar fjarlægð íbúa frá þjónustu. Fólk þarf að eiga þess kost að geta notað annan fararskjóta en einkabílinn í daglegu amstri sínu.“

Karl Benediktsson

Við rannsóknina verður skyggnst inn í huga þeirra sem nota reiðhjól sem farartæki í og úr vinnu og þeirra sem nota einkabíla í sama tilgangi. „Við munum taka viðtöl við 20 manns úr hvorum flokki og leitast við að skilja hvernig ökumenn og hjólreiðamenn hugsa hver um annan í umferðinni. Þá viljum við komast að því hvaða vandamál og hættur fylgja samnýtingu götunnar.“

Karl og Davíð leggja áherslu á að engin ein lausn virki fyrir alla borgina. „Gamli miðbærinn gæti til dæmis hentað vel fyrir samrými hjóla og bíla en á umferðarmestu götunum eru sérstakir jólastígar líklega besta lausnin. Það verður að skoða hvert svæði borgarinnar fyrir sig.“

Við framtíðarskipulagningu Reykjavíkur þarf að breyta um stefnu að þeirra mati: „Í framtíðinni þarf að skipuleggja ný hverfi betur hvað varðar fjarlægð íbúa frá þjónustu. Fólk þarf að eiga þess kost að geta notað annan fararskjóta en einkabílinn í daglegu amstri sínu. Fyrir fólk sem þarf að ferðast langar leiðir er líka mjög mikilvægt að hægt sé að tvinna saman ólíka ferðamáta, eins og reiðhjól og strætisvagna. Ákvarðanir sem eru teknar á skipulagsstigi eru lykillinn að þessu öllu saman og vonandi munu niðurstöður rannsóknar okkar geta nýst við skipulag í Reykjavík og víðar á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni,“ segir Karl að lokum.