Sindri Freyr Eiðsson, doktorsnemi við Læknadeild
Lífefnafræðingurinn Sindri Freyr Eiðsson er aðeins 25 ára gamall og vinnur nú að doktorsverkefni sínu sem ber yfirskriftina: „Ónæmissvör nýburamúsa við meningókokka- og inflúensubóluefnum.“ Meningókokkar eru bakteríur sem hafa reynst Íslendingum alvarlegt heilsufarsvandamál en þessar bakteríur geta m.a. valdið heilahimnubólgu og blóðsýkingum. Nýburar eru taldir vera í mikilli hættu á að fá sýkingar þar sem ónæmiskerfi þeirra er vanþroska og ónæmissvör þeirra hæg og dauf.
Sindri Freyr Eiðsson
Sindri segir að meginmarkmið rannsóknarinnar sé að auka þekkingu okkar á ónæmiskerfi nýbura og að finna skilvirkar aðferðir við bólusetningu þeirra gegn inflúensu og meningókokkasjúkdómum.

Í rannsókn sinni notar Sindri nýburamýs og aldraðar mýs, sem líkön fyrir aðalmarkhópana. Þeir eru ungir og aldraðir einstaklingar. Þetta er gert til þess að rannsaka ónæmissvör þeirra gegn bóluefni úr heilli óvirkjaðri inflúensuveiru (heimsfaraldursstofni), sem er framleidd í vefjarækt og blönduð ónæmisglæðinum CoVaccine HT. Ónæmisglæðar eru efni sem er blandað í sum bóluefni og er ætlað að auka og breyta eðli svörunar ónæmiskerfisins við bólusetningu og auka þannig vörn bólusettra einstaklinga gegn sýkingu. Rannsóknin er styrkt af Evrópusambandinu og hlaut Sindri nýlega doktorsstyrk Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands.
Þessi rannsókn getur reynst mikilvæg fyrir nútímasamfélag, þar sem inflúensufaraldrar geta skotið upp kollinum hvenær sem er. Nýlegt dæmi er heimsfaraldurinn sem gekk yfir af völdum svínainflúensustofnsins – H1N1 – sem olli m.a. alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Að sögn Sindra gætu bólusetningarleiðir sem auka vernd og breikka virkni með minna magni en ella af veiruónæmisvaka mætt þörfum fyrir bóluefni í heimsfaraldri. Rannsókn Sindra hefur sýnt að nýburamýs sýna sambærilegt ónæmissvar við 50 sinnum minna magni af inflúensubóluefninu ef CoVaccine HT er gefið með því en ef það er gefið án ónæmisglæðis.
Sindri segir að meginmarkmið rannsóknarinnar sé að auka þekkingu okkar á ónæmiskerfi nýbura og að finna skilvirkar aðferðir við bólusetningu þeirra gegn inflúensu og meningókokkasjúkdómum. Niðurstöður rannsóknarinnar gætu stuðlað að auknum skilningi á ónæmiskerfi nýbura og lagt grunn að þróun öruggra og árangursríkra bólusetningaraðferða fyrir nýbura og ungbörn gegn inflúensu og meningókokkasjúkdómum, sem myndu stuðla að bættri heilsu og auknum lífslíkum.
Leiðbeinandi: Ingileif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði við Læknadeild.