Skip to main content

Trú og líkn

Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, doktorsnemi við Guðfræði- og trúarbragðadeild

„Það þarf að vinna með sársaukann á heildrænan hátt, andlegi þátturinn er ekki síður mikilvægur en sá líkamlegi,“ segir Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, sjúkrahúsprestur við líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Í doktorsverkefni sínu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild rannsakar Guðlaug Helga trú og trúarviðhorf einstaklinga sem þiggja líknarmeðferð.
 

Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir

„Þegar fólk stendur frammi fyrir dauðanum vakna margar spurningar um tilveruna og tilgang lífsins. Tilfinningar eins og reiði, vanmáttur og ótti við dánarferlið og sársaukann sækja á“

Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir

„Vísbendingar sýna að andleg og trúarleg vídd skipti miklu máli á þessum tíma í lífi fólks,“ segir Guðlaug Helga. „Þegar fólk stendur frammi fyrir dauðanum vakna margar spurningar um tilveruna og tilgang lífsins. Tilfinningar eins og reiði, vanmáttur og ótti við dánarferlið og sársaukann sækja á,“ segir hún.

Það getur verið vandkvæðum bundið að gera rannsóknir innan þessa sviðs þar sem rannsóknin lýtur að fólki með ólæknandi sjúkdóma. Aðstæður geta breyst mjög hratt hjá fólki og orðið þess valdandi að það heltist úr lestinni. „Þátttakendur í rannsókninni eiga þó sammerkt að óska þess að niðurstöðurnar geti nýst öðrum. Þeir vilja leggja sitt af mörkum til þess að það komi inn aukin þekking á þessu sviði og skili betri þjónustu við þann hóp sem þarf að þiggja líknarmeðferð,“ segir Guðlaug Helga. Hún segist vona að rannsóknin höfði til fleiri sjúklinga, með tilliti til hvernig andlegum, trúarlegum og tilvistarlegum þörfum þeirra er sinnt innan heilbrigðisþjónustunnar og hvernig fólki er mætt á því sviði.

Guðlaug Helga segir það krefjandi að starfa með dauðvona einstaklingum. „Auðvitað reynir það á, það er verið að takast á við svo margt á þessum tíma í lífinu. Fólk er oft í andlegri og trúarlegri baráttu og veltir fyrir sér þessum tilvistarlegu spurningum sem verða svo knýjandi þegar áföll koma upp í lífinu. En það sem reynir á og er krefjandi gefur margfalt til baka. Það eru mikil forréttindi að fá að vera samferða fólki á
þessu tímabili í lífi þess.“

Leiðbeinandi: Einar Sigurbjörnsson, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.