Skip to main content

Ný tegund læsis á Netinu

Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild

„Notkun Internetsins og gagnvirkra vefmiðla er hluti af læsi í menningu nútímans og á því við allt skólastarf og þekkingarsköpun,“ segir Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, sem hefur rannsakað menningarlæsi ungs fólks frá árinu 1993.

Guðný veltir fyrir sér hvernig menntakerfið ætlar að bregðast við þróun Internetsins frá því að vera eins konar alfræðiorðabók yfir í gagnvirkan samskiptamiðil sem notendur geta nýtt sér á margvíslegan hátt. Þessi nýja kynslóð Netsins hefur gjarnan verið kölluð Vefur 2.0 eða Web 2.0.

Nýlega tók Guðný viðtöl við einstaklinga úr nýsköpunargeiranum, svo og við kennara og nemendur á öllum skólastigum, til að kanna notkun þeirra á gagnvirkum miðlum í skólastarfi, nýsköpun og til lýðræðislegra samskipta.

Guðný Guðbjörnsdóttir

Guðný veltir fyrir sér hvernig menntakerfið ætlar að bregðast við þróun Internetsins frá því að vera eins konar alfræðiorðabók yfir í gagnvirkan samskiptamiðil sem notendur geta nýtt sér á margvíslegan hátt.

Guðný Guðbjörnsdóttir

Rannsóknin leiddi í ljós að kennarar og nemendur eru jákvæðir fyrir notkun Netsins, en fremur vantrúaðir á gagnvirkniþáttinn í annarri kynslóð vefsins (í Vef 2.0).

„Í viðtölum komu fram ákveðnar efasemdir um blogg, myndasíðuna Flickr, alfræðigáttina Wikipedia, samskiptasíðuna Fésbókina og aðrar gagnvirkar netgáttir, m.a. vegna eineltis. Einnig voru uppi spurningar um áreiðanleika upplýsinga og höfundarrétt efnis,“ segir Guðný.

Hún segir skóla og einstaklinga misopna fyrir þróun Netsins, enda megi segja að hún ógni hefðbundnum starfsháttum skóla um leið og hún opni nýja möguleika. „Dæmi eru um að kennarar noti Fésbókina sem samskiptatæki í kennslu og einnig að amma og frænkur taki æfingapróf á Fésbókinni með börnunum, öllum til gagns og gleði. Þótt samskiptamiðlar séu oft taldir „tímaþjófar“ og truflandi fyrir skólastarf er talið tilgangslaust að banna notkun þeirra því nemar finna alltaf leiðir framhjá slíku,“ segir Guðný.

„Fólk í nýsköpunargeiranum er mun jákvæðara fyrir Vef 2.0 en nemendur og kennarar. Fólk í þeim geira notar mikið þekkta samskiptamiðla eins og Twitter, LinkedIn og Fésbókina til samskipta og samsköpunar. Þá auðveldar Fésbókin nemum og öðrum að kynna sinn málstað án tilkostnaðar, sem felur í sér mikla lýðræðislega möguleika.“