Skip to main content

Guðfræði krossins

Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðadeild

Það er heimilislegt og huggulegt á skrifstofu Arnfríðar Guðmundsdóttur, prófessors við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild. Hún  situr við skrifborð þakið bókum og tvær þeirra skera sig allverulega úr. Það eru nýjustu afkvæmi hennar, bækurnar „Meeting God on the Cross“ og „Út í birtuna.“ Það hlýtur að teljast til tíðinda að tvær bækur eftir sama höfund komi út með nokkurra daga millibili. Arnfríður er hógværðin uppmáluð þegar talið berst að þessum merka áfanga.

„Aðdragandi bókanna hefur verið langur. Þetta er margra ára ferli sem loksins sér fyrir endann á. Ég vil líkja skrifunum við meðgöngu og fæðingu og tek það einmitt fram í inngangi bókarinnar Meeting God on the Cross. Oxford University Press gefur þá bók út en hún verður kennd við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands næsta vor. Hún fjallar um guðfræði krossins og kenningar Krists út frá feminísku sjónarhorni
og nálgunum. Út í birtuna mætti hins vegar kalla dæmigerða kreppubók. Í henni er það presturinn í mér sem talar en ekki fræðimaðurinn.“

Arnfríður Guðmundsdóttir

Nýútgefnar bækur Arnfríðar fjalla um svipað efni nema önnur er fræðirit en hin skrifuð fyrir almenning.

Arnfríður Guðmundsdóttir

Bækurnar fjalla um svipað efni nema önnur er fræðirit en hin skrifuð fyrir almenning. Út í birtuna er gerð í samstarfi við listakonuna Æju. Arnfríður segir að samstarfið hafi gengið frábærlega og ekki hafi annað komið til greina við vinnu bókarinnar en að blanda saman myndlist og ritlist. „Við vinnum með skynfærin en það er einmitt það sem kirkjan hefur gert í gegnum aldirnar, unnið með listinni og í gegnum hana. Mér finnst það afar mikilvægt og vil miðla því áfram.“

Meeting God on the Cross tekur á tvö þúsund ára hefð guðfræði krossins og hvernig hann hefur verið túlkaður á ólíkum tímum af ólíkum fræðimönnum. Arnfríður heldur áfram af innlifun og bersýnilegt er að efnið brennur á henni. „Ég kem með mína eigin túlkun á því hvaða skilaboð guðfræði krossins inniheldur. Hvernig eigum við að túlka krossinn í dag? Ég held því fram að krossinn tali inn í aðstæður samtímans, ekki síst aðstæður kvenna og þjáninguna, sem er ófrávíkjanlega fylgifiskur lífsins. Ég tel að þjáningin hafi verið upphafin og henni gefið gildi. Þannig er það ekki, þjáningin hefur aldrei gildi í sjálfu sér heldur er hluti af lífinu! Ef kristin guðfræði vill hafa eitthvað fram að færa til samtímans þá verður hún að geta mætt fólki þar sem það er.

Guðfræðin verður að boða von og færa hana nn í vonlausar aðstæður. Guðfræði krossins er vonarboðskapur og samfélagið hefur sjaldan verið í eins mikilli þörf fyrir vonina og nú!“

Kveikjan að bókinni var doktorsritgerð Arnfríðar og sú grundvallarspurning hvað Kristur og lútersk guðfræði hafa að segja í aðstæðum nútímasamfélags. Arnfríður endurskrifaði ritgerðina að stórum hluta í Meeting God on the Cross og segir að niðurstaðan sé að lútersk guðfræði hafi mikið að segja á krepputímum. „Túlkunin á krossinum hefur verið notuð til að réttlæta þjáninguna og bókin kemur inn á það. Kirkjan glímir við mikla erfiðleika, líkt og samfélagið í heild. Af þeim sökum eiga báðar bækurnar vel við í dag!“