Guðrún Hallgrímsdóttir, MA-nemi í öldrunarfræðum við Félagsráðgjafardeild
Rannsóknarsjóður Öldrunarráðs Íslands veitti í fyrra styrki til áhugaverðra rannsókna í öldrunarmálum. Alls voru veittir fjórir styrkir en einn þeirra kom í hlut Guðrúnar Hallgrímsdóttur vegna rannsóknar hennar á karlmönnum og karlmennsku á dvalar- og hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu. „Með rannsókninni er ætlunin að skoða hversu mikilvægt það er fyrir karlmenn að viðhalda karlmennskuímynd sinni á efri árum og hvort hún breytist með hækkandi aldri,“ segir Guðrún.
Guðrún Hallgrímsdóttir
Í rannsókninni verður kannað hvort karlmennirnir upplifi næg tækifæri til að viðhalda karlmennskuímynd sinni með þátttöku í afþreyingu, verkefnum eða með bættum félagslegum tengslum.

Í rannsókninni verður kannað hvort karlmennirnir upplifi næg tækifæri til að viðhalda karlmennskuímynd sinni með þátttöku í afþreyingu, verkefnum eða með bættum félagslegum tengslum.
Guðrún er iðjuþjálfi að mennt og starfar sem deildarstjóri iðjuþjálfunar og félagsstarfs á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún segir að margir af þeim karlmönnum sem nú búi á dvalar- og hjúkrunarheimilum hafi alist upp við þær væntingar og kröfur samfélagsins að karlmennskuímyndin krefjist þess að karlmenn séu vinnusamir, sjálfbjarga og forðist athafnaleysi. Guðrún segir að í æsku þessara karlmanna hafi það sjaldnast verið viðeigandi að sýna samkennd og tilfinningar í samskiptum við aðra, það hafi verið merki um veikleika og ósjálfstæði og því ekki í samræmi við ímynd karlmennskunnar.
Guðrún segir að í rannsókninni kynnist hún lífi karlanna í tengslum við athafnir þeirra, þau hlutverk sem þeir gegni, félagsleg tengsl og sjálfsmat þeirra. Þá sé bæði horft til fortíðar og núverandi lífsmáta. Einnig verði reynt að skilja hvað valdi jákvæðri eða neikvæðri upplifun af búsetu. Guðrún segist vonast til að rannsóknin og niðurstöður hennar hjálpi til við að auka lífsgæði aldraðra karlmanna.
Rannsókn Guðrúnar er hluti af norrænu meistaranámi í öldrunarfræðum sem hún stundar nú við Háskóla Íslands. Norrænt MA-nám í öldrunarfræði (NordMaG) er sameiginleg námsleið Háskóla Íslands, Lunds Universitet og University of Jyväskylä. Með náminu er þekking nemenda á málefnum aldraðra dýpkuð og þeir gerðir hæfari til að vinna með öðrum að velferðarmálum aldraðra.
Leiðbeinandi: Sigurveig H. Sigurðardóttir, dósent við Félagsráðgjafardeild