Anna Wojtynska, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
Á fyrirlestraröð Þjóðarspegilsins XI: Ráðstefnu um rannsóknir í félagsvísindum 2010 kenndi ýmissa grasa. Einn fyrirlesaranna var Anna Wojtynska, doktorsnemi í mannfræði við Háskóla Íslands. Salurinn var fullur af fólki þegar Anna hóf umfjöllun sína um pólska innflytjendur í fjárhagserfiðleikum á Íslandi.
„Greinin byggist á tveimur rannsóknum, en ég og Malgorzata Zielinska, doktor við Háskólann í Gdansk, samtvinnuðum rannsóknir okkar á reynslu pólskra innflytjenda á Íslandi. Við rákum okkur sífellt á þá umræðu í samfélaginu að vegna kreppunnar á Íslandi myndu flestir pólskir innflytjendur flytja úr landi, jafnvel snúa aftur til Póllands. Málin eru þó snúnari en svo.“
Anna Wojtynska
„Við rákum okkur sífellt á þá umræðu í samfélaginu að vegna kreppunnar á Íslandi myndu flestir pólskir innflytjendur flytja úr landi, jafnvel snúa aftur til Póllands. Málin eru þó snúnari en svo.“

Umræðan er nokkuð takmörkuð um mál innflytjenda í kreppunni, heldur Anna áfram. „Þær getgátur að flestir innflytjendur fari af landi brott eru byggðar á því að allir innflytjendur séu starfsmenn iðngreina eða ráðnir tímabundið í ákveðin störf. En innflytjendur ílengjast í landinu af mörgum ástæðum. Sumir fá fasta atvinnu, aðrir fara í nám og sumir verða ástfangnir. Fólk byrjar að skjóta rótum á Íslandi og yfirgefur landið ekkert þótt kreppi að. Ísland er þá orðið „heima“ og er það ekki þannig að heima er best?“
Það er ekki bara hægt að horfa á ástandið í því landi sem innflytjandinn býr í, heldur verður einnig að horfa til föðurlands hans. Ástandið er ekkert endilega betra þar en í kreppunni á Íslandi. Anna segir að það hafi komið á óvart að Pólverjar virðast enn flytja til Íslands. „Ég veit að ástandið í Póllandi er ekki fullkomið en það hlýtur að vera erfitt að flytja þaðan til Íslands eins og er, þar sem staða krónunnar er svo veik. Þetta sýnir að fólk flytur af ýmsum ástæðum til annars lands.“
Anna bætir við að lokum að vissulega flytji sumir pólskir innflytjendur frá Íslandi á krepputímum, þó ekkert endilega aftur til Póllands. „Þessir flutningar eru langt frá því að vera einhverjir fjöldaflutningar eða flótti. Svo má ekki gleyma því að margir innflytjendur hafa starfað á Íslandi það lengi að þeir hafa rétt á atvinnuleysisbótum og hafa því „efni á“ að vera áfram á Íslandi og sjá hvernig kreppan þróast.“