Skip to main content

Af hverju verður hvalurinn ekki sjóveikur?

Þyrlulæknirinn Hannes Petersen, dósent við Læknadeild

Það er svartalogn í Hvalfirði og fyrir andartaki féll skúr á afskorinn hvalskjaft. Við erum í hvalstöðinni undir fjallinu Þyrli og fyrir stundu var lokið við að skera langreið á planinu. Þótt hvalveiðar Íslendinga séu umdeildar er skurðarplanið líka vettvangur rannsókna. Yfir haus hvalsins stendur Hannes Petersen, dósent við HÍ, þyrlulæknir, yfirlæknir á háls-, nef- og eyrnadeild Landspítalans og forstöðumaður líffærafræði við Læknadeild HÍ. Hann er með hamar og meitil og lemur títt og ótt.

„Ég er að kanna hvernig stendur á því að hvalurinn, sem er spendýr eins og við, getur synt um í ólgusjó og komist hjá því að verða sjóveikur,“ segir Hannes. „Fyrir milljónum ára skellti hann sér til sunds og kom ekki aftur á land. Mig fýsir að vita hvernig hann hefur aðlagast þessum nýju heimkynnum, sérstaklega með tilliti til innra eyrans. Niðurstöðurnar geta nýst við rannsóknir á hreyfiveiki manna og hjálpað til við að finna lausnir,“ segir Hannes.

Hannes Petersen

„Ég er að kanna hvernig stendur á því að hvalurinn, sem er spendýr eins og við, getur synt um í ólgusjó og komist hjá því að verða sjóveikur.“

Hannes Petersen

Miðeyra hvalsins fullt af vatni

Rannsóknir Hannesar hafa beinst að hlutverki innra eyra mannsins í stöðustjórnun og líka að hlutverki annarra skynþátta í stjórnun uppréttrar stöðu okkar. Þetta skiptir líklega meira máli fyrir Íslendinga en margar aðrar þjóðir því að við reiðum okkur að verulegu leyti á fiskveiðar. Á sjónum getur oft verið erfitt að ná jafnvægi og standa uppréttur enda gefur á bátinn á Íslandsmiðum.

„Sjáðu, miðeyra hvalsins er fullt af vatni, öfugt við okkur,“ segir Hannes og dregur vökva út með sprautu. „Þetta kemur í veg fyrir að hljóðhimnan springi þegar hvalurinn kafar. Við viljum hafa loft í miðeyrum okkar, en skilgreinum vökvafyllt miðeyra sem vandamál í börnum sem þjást af eyrnabólgu. Það þarf stundum að leysa með því að setja rör í gegnum hljóðhimnu barnsins sem hleypir vökvanum út og þrýstingnum af miðeyranu. Hjá hvalnum er það lífsspursmál að hafa vökvann. Ekki hjá okkur.“

Hannes segir að rannsóknir sínar á sjóveiki hafi leitt í ljós að sjómenn verða sjóveikir þó svo að þeir kasti ekki upp. Einnig hefur verið sýnt fram á að sjómönnum sé hættara en öðrum við að slasast, ekki bara úti á sjó, heldur líka í landi. „Það að sjóast hefur stundum verið skilgreint sem hraustleikamerki, en aðstæður á sjó eru óeðlilegar og við það að sjóast virðist maðurinn missa ákveðna eiginleika sem snúast um að meta hraða og hreyfingu hluta í nærumhverfi sínu. Þetta veldur slysum þegar í land er komið, en sjóveiki með skertri starfsemi stöðustjórnunar skýrir að einhverju leyti slysin úti á sjó.“

Hannes lítur andartak upp frá iðju sinni og segir: „Ef rannsóknir okkar á hvalnum geta leitt til þess að draga megi úr slysahættu þá er það mikilvægur áfangi í að auka öryggi sjómanna sem vinna að því að bæta lífskjör allra Íslendinga.“