Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild
„Tilgangur rannsóknarinnar er að meta árangur af meðferð fyrir börn sem missa oft stjórn á skapi sínu og lenda í tíðum árekstrum við aðra. Meðferðina hef ég þróað í nokkur ár en henni er ætlað að bæta hegðun og líðan barnanna með því að kenna þeim aðferðir til að stjórna betur tilfinningaviðbrögðum sínum og bæta færni þeirra til að leysa úr málum,“ segir Urður Njarðvík, dósent í klínískri barnasálfræði.
Hún hefur mikinn áhuga á að leita lausna við hegðunarvanda barna í fyrstu bekkjum grunnskólans og þar sem fáar rannsóknir voru til á úrræðum sem byggjast á hugrænni atferlismeðferð fyrir hópinn réðst hún í að þróa meðferðina. „Hugmyndin vaknaði út frá vinnu með börnum með ADHD og hegðunarvanda. Það er algengt að þau glími einnig við kvíða og depurð og mig langaði til þess að þróa meðferð fyrir þennan hóp sem tæki á hugrænum þáttum og bætti hæfni þeirra í samskiptum,“ segir Urður.
Urður Njarðvík
Urður hefur mikinn áhuga á að leita lausna við hegðunarvanda barna í fyrstu bekkjum grunnskólans og þar sem fáar rannsóknir voru til á úrræðum sem byggjast á hugrænni atferlismeðferð fyrir hópinn réðst hún í að þróa meðferðina.

Urður hefur þegar prófað meðferðina á 150 börnum og niðurstöðurnar lofa mjög góðu. „Þrátt fyrir að meðferðin taki einungis sex vikur sýna niðurstöður marktækan árangur, jafnt hjá börnum með ADHD og aðrar raskanir. Börnin sem ljúka meðferðinni sýna marktækt færri skapofsaköst og minni hegðunarvanda en samanburðarhópurinn, bæði að mati kennara og foreldra. Árangurinn hefur jafnframt haldist við sex mánaða eftirfylgd svo að við erum klárlega á réttri leið,“ segir Urður.
Hún bendir enn fremur á að sambærilegar meðferðir, sem áður hafi verið þróaðar, taki yfirleitt 12–18 vikur og því sé hér á ferðinni lausn sem hafi verulegt samfélagslegt gildi. „Með meðferðinni er hægt að bjóða börnum með hegðunarvanda upp á árangursríka lausn snemma á skólagöngunni, sem er hvorki dýr né tímafrek í framkvæmd,“ segir Urður.