Frosti Pálsson, doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
„Fjarkönnunarmyndir sem gervihnettir á braut um jörð safna og senda til jarðar eru gríðarlega mikilvægar fyrir fjölmörg svið, svo sem veðurfræði, kortagerð, rannsóknir á loftslagi, jarðfræði, hernað, landbúnað og svo má lengi telja,“ segir Frosti Pálsson, doktorsnemi í rafmagns- og tölvuverkfræði. „Helsta ástæðan fyrir því að ég valdi þetta viðfangsefni er sú að við deildina starfa menn sem eru framarlega í að hagnýta merkjafræði við fjarkönnun.“
Frosti Pálsson
„Helsta ástæðan fyrir því að ég valdi þetta viðfangsefni er sú að við deildina starfa menn sem eru framarlega í að hagnýta merkjafræði við fjarkönnun.“

Rannsókn Frosta snýst um svokallaða sambræðslu (e. image fusion) tvenns konar fjarkönnunarmynda, annars vegar sambræðslu víðbandsmyndar í háupplausn (e. panchromatic image) og fjölrásamyndar í lágupplausn (e. multispectral image) og hins vegar sambræðslu fjölrásamynda af hárri og lágri upplausn og með mismunandi fjölda banda. Allar myndirnar sýna sama landsvæði. Hver fjölrásamynd samanstendur af fjölda mynda þar sem hver einstök mynd sýnir ljós af tilteknu þröngu sviði rafsegulrófsins. „Vegna takmarkana fjölrásaskynjarans hefur hver mynd eða rás lága upplausn, þ.e. litla greinihæfni. Með sambræðslu þessara mynda er leitast við að auka greinihæfni fjölrásamyndarinnar með upplýsingum sem eru fólgnar í víðbandsmyndinni þannig að notagildi sambræddu myndarinnar eykst talsvert, t.d. við sjálfvirka flokkun,“ segir Frosti.
Frosti segir doktorsrannsóknina framhald af meistaraverkefni sínu þar sem hann þróaði aðferð fyrir sambræðslu en þar hafði fjölrásamyndin aðeins fjórar rásir. „Í doktorsverkefninu verða m.a. þróaðar aðferðir til að fást við fjölrásamyndir sem hafa allt að hundruðum rása (e. hyperspectral image) og einnig aðferðir til að bræða saman fjölrásamyndir í lág- og háupplausn. Þar sem þetta er framhald á meistaraverkefni mínu má segja að þegar séu komnar niðurstöður og hafa þær verið kynntar bæði á ráðstefnum og birtar í alþjóðlegum vísindatímaritum. Þá mun ég kynna nýja aðferð við sambræðslu á ráðstefnu sumarið 2014,“ segir Frosti að lokum.
Leiðbeinendur: Jóhannes R. Sveinsson, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, Magnús Örn Úlfarsson, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, og Jón Atli Benediktsson, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.