Vilmundur Guðnason, prófessor við Læknadeild HÍ, stýrði að hluta rannsókn sem valin var í hóp allra mikilvægustu rannsóknanna árið 2009 á sviði hjarta- og heilasjúkdóma. Bandarísku hjartaverndarsamtökin stóðu að valinu en þau tilgreina árlega tíu bestu rannsóknir í heimi á sviði hjarta- og æðasjúkdóma og heilaáfalla.
Vilmundur Guðnason
Vilmundur stýrði að hluta rannsókn sem valin var í hóp allra mikilvægustu rannsóknanna árið 2009 á sviði hjarta- og heilasjúkdóma.

Við rannsóknina komu fram gen sem stýra blóðþrýstingi hjá mönnum en grein um rannsóknina birtist í tímaritinu Nature Genetics í fyrravor. Rannsóknin var unnin í samstarfi Hjartaverndar og evrópskra og bandarískra vísindamanna. Vilmundur stýrði íslenska rannsóknarteyminu en hann er jafnframt forstöðulæknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar.
Hjartaverndarsamtökin bandarísku njóta mikillar virðingar á heimsvísu og því er þessi niðurstaða mikilvæg viðurkenning á því starfi sem Hjartavernd hefur staðið fyrir í 40 ár. Þetta er einnig afar mikill heiður fyrir Vilmund Guðnason, íslenskt vísindasamfélag og Háskóla Íslands. Þetta sannar jafnframt mikilvægi þeirra rannsókna sem Hjartavernd sinnir á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.