Hafrún Hauksdóttir, doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.
„Markmið okkar er að hanna tæki sem metur á öruggan hátt þegar kýr er komin að burði og sendir viðvörun þar um. Við köllum þetta tæki Burðarvakann,“ segir Hafrún Hauksdóttir, doktorsnemi við Háskóla Íslands. Hún er verkefnisstjóri í þróun tækis sem á að auka lífslíkur kálfa. Verkefni Hafrúnar hlaut hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2009. Hafrún segir að Burðarvakinn sé samvinnuverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands og að það sé sprottið frá hugmynd sem kviknaði á Nýsköpunarmiðstöð.
Hafrún Hauksdóttir
„Markmið okkar er að hanna tæki sem metur á öruggan hátt þegar kýr er komin að burði og sendir viðvörun þar um. Við köllum þetta tæki Burðarvakann“

„Það þarf langa reynslu af búskap til að meta fjölda daga að burði hjá kúm,“ segir Hafrún, og bætir við að það mat sé alltaf huglægt. „Með aukinni tæknivæðingu eykst fjöldi kúa á hverju búi og bændur verða sjálfkrafa í minni snertingu við skepnurnar. Þessi stækkun búanna kallar eftir tækni sem getur metið ástand skepnunnar hlutlægt og tilkynnt bóndanum sjálfvirkt þegar stutt er í burð,“ segir Hafrún.
„Með því fækkar óvissuferðum í fjósið,“ bætir hún við og brosir, „vinna við burðinn verður einfaldari og álag á bændur minnkar.“ Hafrún segir að kálfadauði sé alþjóðlegt og vaxandi vandamál og svo sé komið að fjöldi dauðfæddra kálfa sé verulegt áhyggjuefni kúabænda. „Þetta eykur kostnað, dregur úr framleiðni búanna og er að auki íþyngjandi andlega fyrir kúabændur. Með Burðarvakanum standa vonir til að verulega megi minnka kálfadauða og önnur áföll tengd burði,“ segir Hafrún.
Hún segir að stefnan sé að ná fótfestu með tæknina á alþjóðamarkaði, með einkaleyfi og kynningum á fagráðstefnum dýralækna, landbúnaðarsýningum og kynningum í bændablöðum og síðast en ekki síst með góðri afspurn.
Leiðbeinandi: Magnús Örn Úlfarsson, lektor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild.