Jöklar á Íslandi, verk Helga Björnssonar jöklafræðings við Háskóla Íslands, hefur fengið afar lofsamlega dóma í fjölmiðlum en bókin kom út fyrir jólin.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Í þeim flokki voru reyndar tvær bækur tilnefndar eftir vísindamenn við HÍ, því bókin Mynd af Ragnari í Smára eftir Jón Karl Helgason, var einnig tilnefnd.
Jón Karl er dósent í íslensku fyrir erlenda stúdenta. Bók Helga fékk svo Íslensku bókmenntaverð- launin í febrúar. „Stórvirki – það er orðið sem mér finnst eiga best við um bókina Jöklar á Íslandi,“ segir Guðni Einarsson, gagnrýnandi í Morgunblaðinu. Það segir Guðni fyrst og fremst eiga við þá miklu og víðtæku þekkingu sem dr. Helgi hafi safnað og sett fram á auðskilinn hátt. Í Morgunblaðinu fær bókin fimm stjörnur eða fullt hús hjá gagnrýnanda blaðsins.
Helgi Björnsson
Helgi Björnsson er vísindamaður við Jarðvísindadeild Háskólans og einn helsti sérfræðingur Íslendinga í jöklarannsóknum.

Helgi Björnsson er vísindamaður við Jarðvísindadeild Háskólans og einn helsti sérfræðingur Íslendinga í jöklarannsóknum. Rannsóknir hans hafa verið fjölþættar. Helgi hefur aflað grundvallargagna um alla helstu jökla Íslands. Meginverkefni hans hefur verið kortlagning á yfirborði og botni jökla með íssjármælingum, afmörkun vatnasvæða jökulfljótanna, mælingar á afkomu jökla og tengsl við veðurfar.
Á grundvelli þessara gagna hefur Helgi kannað hegðun jökla í nútíð og fortíð og hvernig ætla má að loftlagsbreytingar hafi áhrif á jökla til framtíðar. Jöklar Íslands rýrna nú hratt og rannsóknir Helga og samstarfsmanna hans benda til þess að Langjökull verði horfinn eftir 120 til 130 ár og Hofsjökull verði aðeins smáskella eftir 200 ár gangi spár veðurfræðinga eftir um hlýnun.
Rannsóknirnar benda til þess að suðurhluti Vatnajökuls hverfi líka á sama tíma en norðurhluti hans gæti staðist áhlaupið í þrjár aldir.Í bók sinni útskýrir Helgi myndun jökla og mismunandi gerðir þeirra. Einnig rifjar hann upp heimildir um jökla allt frá upphafi Íslandsbyggðar. Helgi rekur hvernig þekkingu manna á jöklunum og eðli þeirra hefur fleygt fram í aldanna rás. Hann gerir einnig ítarlega grein fyrir ísöldum og hlýskeiðum líku því sem við lifum nú en saga loftslagsbreytinga hefur einmitt verið lesin úr jöklum og sjávarseti.