Skip to main content

Samningahegðun Íslendinga

Ragnhildur Bjarkadóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum við Stjórnmálafræðideild

Ef þú ert á bát sem er að sökkva eftir tvær mínútur, þá er enginn um borð sem getur bjargað þér eins og Íslendingur. Hann myndi finna 1000 leiðir til þess að taka af hurðina og hanga á henni. En ef hann ætti að búa til öryggisreglurnar fyrir bátinn, þá myndum við sökkva“ (forstjóri í íslensku stórfyrirtæki vorið 2007).

Frá árinu 2000 til 2007 varð áberandi á Íslandi fámennur hópur sem gjarnan var nefndur útrásarvíkingar og samanstóð af forstjórum, stjórnarmönnum og eigendum fyrirtækja sem stunduðu fyrirtækjakaup á erlendum vettvangi. Þessir aðilar skutust upp á stjörnuhimin og vöktu athygli fyrir herskáa framgöngu og óhefðbundnar leiðir í samningaviðræðum. Dagblöð heimshorna á milli fjölluðu um íslensku leiðina í fyrirtækjarekstri og háttsettir embættismenn Íslands notuðu hvert tækifæri til að hylla þennan hugrakka hóp sem þorði af taka af skarið. Eins hratt og frægðarsól þeirra reis, varð fallið hátt og viðbrögð óvinveitt.

Ragnhildur Bjarkadóttir

Markmið rannsóknarinnar var að bera saman og skilja hvernig samningamenn undirbjuggu sig og upplifðu viðræður á alþjóðavettvangi og hvort séríslenskir þættir stæðu að baki samningaferli þeirra.

Ragnhildur Bjarkadóttir

Til að fá örlitla innsýn í heim útrásarvíkings í alþjóðlegum samningaviðræðum tók Ragnhildur Bjarkadóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum, viðtöl við 16 manns sem skipuðu framvarðasveit íslensks viðskiptalífs. Viðtölin voru tekin á tímabilinu apríl 2007 til mars 2008. Markmið rannsóknarinnar var að bera saman og skilja hvernig samningamenn undirbjuggu sig og upplifðu viðræður á alþjóðavettvangi og hvort séríslenskir þættir stæðu að baki samningaferli þeirra.

Við greiningu gagna var gengið út frá hugmyndafræði félagslegrar mótunarhyggju. Hún felur meðal annars í sér að engin þekking sé algild heldur byggja viðmælendur upp huglæga merkingu út frá reynslu. Meðal þess sem kom í ljós var að hugmyndafræði íslenskra samningamanna var nokkuð svipuð og séríslensk einkenni töluvert áberandi.

,,...Íslenskir athafnamenn í samningaviðræðum... ja...þú þarft að hafa einhvern sem er með sko... höfuðið í skýjunum en báða fæturna á jörðinni“ (viðtal fyrir forstjóra í íslensku stórfyrirtæki, nóvember 2007).

Leiðbeinandi: Silja Bára Ómarsdóttir, aðjunkt við Stjórnmálafræðideild.