Kristján Ketill Stefánsson, doktorsnemi í menntunarfræðum
„Mjög margir velja sig frá raungreinum snemma á skólagöngunni og telja þær ekki eiga við sig,“ segir Kristján Ketill Stefánsson, doktorsnemi við Menntavísindasvið. Hann segir hlutfallslega fækkun í raungreinatengdu háskólanámi á síðastliðnum árum endurspegla þetta. Kristján Ketill vinnur að því að kortleggja áhugahvöt nemenda á unglingsárum í raungreinum. Í framhaldinu ætlar hann að prófa og þróa kennsluaðferðir sem þjálfa nemendur í að nota aukinn vitsmunaþroska unglingsáranna til aukins árangurs og áhuga á raungreinanámi.
Kristján Ketill Stefánsson
Kristján Ketill vinnur að því að kortleggja áhugahvöt nemenda á unglingsárum í raungreinum.

„Rannsóknartilgáta mín er sú að kennsluaðferðirnar sem ég hyggst prófa á unglingastigi grunnskóla stuðli að auknum árangri í raungreinum og áhuga á þeim,“ segir Kristján Ketill. Hann vonast til að rannsóknin skili aukinni þekkingu á áhugahvöt nemenda á unglingastigi og að niðurstöðurnar geti nýst í kennaranámi, á vettvangi og til frekari rannsókna. „Ég vonast einnig til að rannsóknin dragi fram hversu stutt bil getur verið á milli vísindasamfélagsins og þess starfs sem kennarar framkvæma á vettvangi.“
Hliðartilgangur rannsóknarinnar er að gera vandaðar mælingar á líðan nemenda, virkni þeirra og skóla- og bekkjaranda aðgengilegar kennurum í gegnum rafræna sjálfsmatskerfið Skólapúlsinn sem hefur verið útbúið í þessum tilgangi. Skólapúlsinn er þróunarverkefni sem Kristján Ketill og Almar M. Halldórsson vinna að innan Menntavísindasviðs. Í því sambandi vonast hann eftir að notkun Skólapúlsins leiði til þess að skólaþróun fari að byggjast meira á niðurstöðum sem eiga við um þann nemendahóp sem er í skólanum hverju sinni.
Leiðbeinendur: Sif Einarsdóttir, dósent við Félagsvísindasvið, og Steinunn Gestsdóttir, dósent við Menntavísindasvið.