Skip to main content

Fjölmiðlar og innflytjendur

Helga Ólafs, doktorsnemi í félagsfræði

„Meirihluti Pólverja notar íslenska fjölmiðla daglega en um sjö af hverjum tíu lesa dagblöðin á hverjum degi," upplýsir Helga um niðurstöður könnunar meðal 650 innflytjenda frá Póllandi sem hún gerði í MA-námi í blaða- og fréttamennsku.

Helga hefur bæði unnið við fjölmiðla og að málefnum innflytjenda og ákvað að skeyta þessum áhugasviðum saman. ,,Við treystum á fjölmiðla til að fá upplýsingar um samfélagið en vissum lítið um fjölmiðlanotkun innflytjenda." Helga kaus að rannsaka fjölmiðlanotkun Pólverja vegna þess að þeir eru langstærsti hópur innflytjenda á Íslandi,eða um 11.000.

Helga Ólafs

Helga rannsakar nú umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur. „Fjölmiðlar leika mikilvægt hlutverk í aðlögun innflytjenda að nýju samfélagi, m.a. með því að endurspegla íslenskt samfélag.“

Helga Ólafs

Fréttablaðið nýtur mestra vinsælda meðal þátttakenda. „Þeir lesa helst fyrirsagnir og auglýsingar og skoða myndir. Þeir nota aftur á móti mest Netið til að afla sér frétta um sitt heimaland," segir Helga. Hún bætir við að kjörið sé að nýta þann miðil betur til að miðla fréttum til innflytjenda.

Helga rannsakar nú umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur. „Fjölmiðlar leika mikilvægt hlutverk í aðlögun innflytjenda að nýju samfélagi, m.a. með því að endurspegla íslenskt samfélag. Sú er þó ekki raunin með innflytjendur. Við hvorki sjáum né heyrum af þeim í miðlunum og þar af leiðandi þekkjum við lítið til þeirra. Úr þessu þarf að bæta," segir Helga.

Leiðbeinendur: Helgi Gunnlaugsson og Þorbjörn Broddason, prófessorar í félagsfræði.