Skip to main content

Áhrif geislunar á erfðaefni

Helga Dögg Flosadóttir, doktorsnemi í Raunvísindadeild

Fram hefur komið í rannsóknum að geislun getur leitt til stökkbreytinga, sem geta síðan leitt til krabbameins. Helga Dögg Flosadóttir, doktor í eðlisefnafræði, segir að nýlega hafi verið sýnt fram á að rafeindir með mjög lága orku geti brotið DNA-þráð (erfðaefni), en þær myndast alltaf í frumuvef sem er útsettur fyrir háorkugeislun. Í rannsókninni mun hún og samstarfsmenn hennar skoða samverkan rafeindanna við sameindirnar og áframhaldandi örlög þeirra. Markmiðið með verkefninu er að ákvarða hvernig DNA-byggingareiningar brotna niður ef þær verða í vegi fyrir rafeindum með mjög lága orku. „Við viljum þekkja allar helstu niðurbrotsleiðir og umraðanir vegna rafeindanna,“ segir Helga.

Helga Dögg Flosadóttir

Helga segir að nýlega hafi verið sýnt fram á að rafeindir með mjög lága orku geti brotið DNA-þráð (erfðaefni), en þær myndast alltaf í frumuvef sem er útsettur fyrir háorkugeislun.

Helga Dögg Flosadóttir

„DNA-keðjur eru mjög stórar en þær eru í grunninn búnar til úr einungis fáum mismunandi einingum. Við höfum skoðað áhrif geislunar á hverja einingu og nokkrar samsettar. Þannig getum við auðveldar ákveðið hvaða niðurbrot og/eða umraðanir eiga sér stað í löngum keðjum. Með þessari aðferð búum við til nokkurs konar gagnagrunn sem auðveldar allar rannsóknir á niðurbroti erfðaefnisins sjálfs í framtíðinni.“

Frá umhverfinu kemur stöðugt magn geislunar. Hluti þeirrar geislunar hefur ekki næga orku til þess að geta valdið skaða (s.s. örbylgjur). Sá hluti sem er skaðlegur kemur m.a. að frá geislavirkum efnum, sólarljósi, ljósalömpum o.fl. Þess má geta að ljósalampar hafa verið flokkaðir sem krabbameinsvaldandi í Bretlandi og þykja því jafn skaðlegir og sígarettur. Það er nauðsynlegt að þekkja áhrif þessarar geislunar á erfðaefni okkar. Þar að auki er háorkugeislun notuð til krabbameinslækninga þar sem henni er ætlað að drepa krabbameinsfrumuvef. Með því að reikna með áhrifum rafeindanna sem myndast í frumuvefnum þegar hann er geislaður með háorkugeislun er hægt að auka nákvæmni á geislaskömmtum og minnka þannig áhættu á óþarfa skemmdum heilbrigðs vefjar umhverfis æxlið.

Leiðbeinandi: Oddur Ingólfsson, prófessor við Raunvísindadeild.