Lárus Steinþór Guðmundsson, doktorsnemi við Læknadeild
„Röð tilviljana réð því að ég fór að rannsaka samband milli mígrenis og áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma,“ segir Lárus St. Guðmundsson lyfja- og faraldsfræðingur.
„Ég byrjaði að rannsaka meðferð við of háum blóðþrýstingi í tengslum við hjarta- og æðasjúkdóma í hóprannsókn Hjartaverndar, sem hófst árið 1967. Magnús Jóhannsson prófessor benti mér á að áhugavert væri að skoða tengsl mígrenis og blóðþrýstings og það verkefni vatt síðan upp á sig. Nokkrar rannsóknir hafa sýnt samband milli mígrenis og háþrýstings en niðurstöður úr hóprannsókn Hjartaverndar sýna að svo er ekki.“
Lárus Steinþór Guðmundsson
„Röð tilviljana réð því að ég fór að rannsaka samband milli mígrenis og áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma.“

Lárus og samstarfsmenn hans birtu nýverið niðurstöður í JAMA, blaði bandarísku læknasamtakanna, um að mígreni með áru, þ.e. sjón- og/eða skyntruflunum samfara mígrenikasti, á miðjum aldri sé tengt aukinni tíðni vefjabreytinga í heila, mældra með segulómun, á efri árum. „Samband þetta fannst hjá konum en ekki hjá körlum. Þess ber að geta að mígreni er um þrefalt algengara hjá konum en körlum á miðjum aldri og því voru karlarnir of fáir til þess að meta sambandið með afgerandi hætti. Vefjabreytingarnar voru án klínískra einkenna. Það á eftir að meta hvaða þýðingu þessar vefjabreytingar hafa, en þær renna stoðum undir kenningar um tengsl mígrenis við hjarta- og æðasjúkdóma.“
„Nú erum við að leggja lokahönd á rannsókn þar sem við athugum hvort samband sé milli mígrenis og dauða vegna hjarta- og æðasjúkdóma, sem og dauða af hvaða orsök sem er," segir Lárus, sem kveðst vonast til þess að niðurstöður rannsóknarinnar nýtist við að skýra hvernig mígreni með áru tengist hjarta- og æðasjúkdómum.
Leiðbeinandi: Vilmundur Guðnason, prófessor við Læknadeild og forstöðulæknir Hjartaverndar.
Lárus lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands haustið 2010.