Nemi í sjúkraþjálfun verðlaunaður á evrópskri ráðstefnu

Fulltrúar frá Námsbraut í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands tóku nýverið þátt í ráðstefnu evrópsku samtakanna ENPHE (European Network of Physiotherapy in Higher Education) í Gent í Belgíu. Marrit Meintema, nýútskrifaður meistaranemi í sjúkraþjálfun frá HÍ, hlaut önnur verðlaun á ráðstefnunni í flokki bestu rannsóknarverkefnanna. Verkefnið hennar ber heitið: „Hryggrauf á Íslandi: Faraldsfræði, heilsa og líðan meðal fullorðinna“. Við rannsóknina safnaði Marrit upplýsingum um öll börn sem fæðst hafa með hryggrauf á Íslandi á árunum 1972 til 2011 auk þess sem hún lagði mat á heilsu og hreyfingu fullorðinna með fötlunina.
Leiðbeinandi hennar var Þjóðbjörg Guðjónsdóttir, lektor í sjúkraþjálfun, en hún var jafnframt kosin í stjórn ENPHE samtakanna á ráðstefnunni til næstu fjögurra ára. Enn fremur voru nokkrir nemendur úr grunnnámi í sjúkraþjálfun með í för sem tóku þátt í ýmsu starfi á vegum nemendafélags ENPHE.
Um ENPHE
ENPHE er samstarfsnet háskóla í Evrópu sem kenna sjúkraþjálfun. Tilgangur samtakanna er að auka samstarf milli háskóla í Evrópu til að þróa kennsluhætti, stuðla að gæðum í námi í sjúkraþjálfun, auka þekkingu og hvetja til kennara- og stúdentaskipta. Innan samtakanna er starfandi öflugt félag nemenda í sjúkraþjálfun sem tekur þátt starfi samtakanna. Árlega standa samtökin fyrir vinnufundi að vori og ráðstefnu að hausti. Ráðstefna ENPHE samtakanna verður haldin á Íslandi árið 2017.
Nánari upplýsingar á vefsíðu samtakanna http://enphe.org/

