Skip to main content

Hyggst auka gæði aflans

Sæmundur Elíasson, MS frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

Fiskur er ein verðmætasta útflutningsafurð Íslendinga og því er mikilvægt að nýta hráefnið vel og tryggja gæði þess. Sæmundur Elíasson vinnur nú að verkefni sem ætlað er að auka gæði aflans hjá smábátum og auka þar með verðmæti hans. Verkefnið snýst um að hanna nýja ískrapavél, sem henta mun smábátum, en Sæmundur hyggst nýta verkefnið sem hluta af doktorsnámi sem hann stefnir að við Háskóla Íslands. Á sama tíma vinnur hann að þróun á nýju verklagi við að kæla aflann.

„Með hraðari kælingu strax eftir veiðar lengist sá tími sem líður áður en dauðastirðnun hefst í fiskinum og það hefur jákvæð áhrif á gæði holdsins. Einnig eykst geymsluþol með lægra hitastigi,“ segir Sæmundur.

Hann bendir á að borið hafi á að aflinn frá smábátum hafi verið mjög misjafn að gæðum og það leiðir til lægra verðs. „Ætla má að verulegt tap hafi orðið síðustu ár vegna ónægrar kælingar um borð í bátunum.“

Sæmundur Elíasson

Sæmundur vinnur nú að verkefni sem ætlað er að auka gæði aflans hjá smábátum og auka þar með verðmæti hans.

Sæmundur Elíasson

Sæmundur segir að gæði og rétt meðhöndlun afla hafi oft minni forgang en magnveiðar en með breyttu hugarfari, vinnubrögðum og innleiðingu nýrra kosta við að kæla aflann séu miklir möguleikar á að auka verðmæti. Afli smábáta geti farið í allra hæsta gæðaflokk sé rétt staðið að meðhöndlun.

Vinnu er nú lokið við smíði frumgerðar af nýrri ískrapavél og hefur hún verið reynd í veiðiferðum. Nú mun verða rýnt í niðurstöður tilrauna og afraksturinn verður grunnur að endurhönnun vélarinnar.

„Ég hef almennt mikinn áhuga á að leita nýrra tæknilegra lausna til að auka gæði og nýtingu aflans úr sjó. Sú aðferðafræði sem ég nota í slíkum rannsóknum er að skilgreina bestu mögulegu meðhöndlun hráefnisins og leita síðan leiða til að vinna sem hagkvæmast eftir því ferli. Það er í raun þarfagreining út frá hráefninu en til þess að ná árangri þarf að afla þekkingar og fá skilning á eðlis- og efnafræðilegum eiginleikum hráefnisins.“

Margir aðilar koma að verkinu en í því fléttast saman kraftar atvinnulífs og rannsóknastofnana. Það er stutt af Tækniþróunarsjóði Rannís og unnið í samstarfi Háskóla Íslands, Matís, Thor-Ice, 3XTechnology, Landssambands smábátaeigendaog Valda sem er smábátaútgerð.

„Bætt kæling um borð í smábátum mun vafalítið auka almennt gæði þess afla sem landað er og í því felst ávinningur bæði fyrir sjómenn og framleiðendur. Ávinningurinn fyrir þjóðarbúið er líka mikill þar sem lélegur fiskur á markaði hefur áhrif á orðspor íslenskra afurða.“

Leiðbeinendur: Sigurjón Arason, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, og Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.